Finnst ykkur þetta rétta viðhorfið...að kjósa ekki Selmuna í úrslitin í eurovision...eitthvað held ég að þetta hafi verið misskilningur...er heimurinn gjörsamlega að misskilja okkur íslendinga? eða erum við kannski bara að misskilja heiminn?
Var að horfa á Gísla Martein í þvottahúsinu...gamall laugardagskvöldsþáttur þar sem Gíslinn skrapp í heimsókn til DK og spjallaði við ALLA frábæru íslendingana sem eru gjörsamlega að meika það hér í DK...við íslendingar erum bara að leggja undir okkur baunaveldið...eða hvað?
Íslendingar í DK eru alveg sér fyrirbrigði. Nú hef ég ekki búið í öðru útlandi svo ég get ekkert sagt um hvort við högum okkur svona í öðurm löndum líka...
En hérna ráfum við um í hópum. Ef einhver af öðru þjóðerni reynir að tala við okkur verður umræðuefnið að vera um Ísland. Ísland er nefnilega svo rosalega frábært land og íslendingar svo rosalega æðislegir...það ættu hreinlega allir að taka okkur til fyrirmyndar...okkar leið er besta leiðin...
Ég veit allavegana að mér finnst alveg rosalega leiðinlegt að tala við fólk sem getur ekki talað um neitt annað en sjálft sig. Auðvita tala allir um sjálfa sig að einhverju mæli, en flestir hlusta á viðmælandann tala um sjálfan sig líka...en ekki íslendingar...vegna þess að okkur er svo rosalega mikið í mun að kenna fólki í kringum okkur hvernig á að lifa...þið vitið svona eins og við gerum heima á íslandi...
En vegna þess hvað við erum rosalega duglega að tala bara um ísland eru danir hreint og beint ólmir í að tala við okkur...umræðuefnið er nefnilega alltaf svo fjörugt og FJÖLSKRÚÐUGT
Svo okkar á milli tölum við um hvað danir eru rosalega vitlaus. Þau eru svo löt, nenna bara að vinna 8 tíma á dag og vilja svo eyða restinni af deginum með fjölskyldunni, hvað er það? Vilja svo ekki eyða peningunum sínum í alls konar vitleysu heldur spara svo þau svo þau geti verið í lengra sumarfríi...halló, halló halló!!! Danir ættu nú bara að flytja í smá tíma til íslands og læra hvernig hægt er að vinna allan sólahringinn, allan ársins hring, alla ævi...
Jæja en án gríns...á meðan við erum í DK finnst mér að við ættum að tileinka okkur þeirra lífshætti...þetta er nú einu sinni danmörk þar sem samfélagið er danskt, ekki íslenskt...við íslendingar í DK erum kannski svona 1% af fjöldanum....svo þegar við förum heim getum við reynt að kenna dönunum sem hafa ákveðið að flytja til íslands...því danir eru svo margir á íslandi því ísland er svo miklu betra land...hvernig íslenskt samfélag gengur fyrir sig...
Kannski er mál að spyrja sig af hverju við fluttum til DK? Var það vegna þess að allt var svo fullkomið á íslandi? Eða var það kannski vegna þess að það er ekki allt svo fullkomið á íslandi? humm...
Svo var það íslenski strákurinn sem kom til DK...hann var að labba yfir götu þó svo að rauði kallinn væri ennþá...löggan kom og stoppaði hann og sagði að þetta væri ólöglegt...strákurinn horfði þá furðu lostinn á lögguna og sagði: "but in Iceland you know, we just walk over the street if there are no cars"...án þess að springa úr hlátri náði löggu greyið að segja "but you ARE in denmark". Drengstaulinn fékk ekki sekt...en alveg er ég viss um að þessi litla saga um "vitlausa" íslendinginn lifi góðu lífi á löggustöðinni...
Ísland bezt í heimi!!!?