Auðun kom í smá heimsókn til mín í gær. Við fórum saman í matarboð til Ernu í íslenska fiskiveislu með tilheyrandi bjórsmökkun. Auðun fékk hvorki fisk né bjór en hann var barasta ánægður með pizzuna og kókið...
Hann kom aðeins með mér inní eldhúsið mitt...akkúrat um kvöldmatarleitið...eldhúsið var fullt af fólki...sumir að elda meðan aðrir voru byrjaðir að borða...þegar við löbbuðum út var Auðun rosalega hissa á hversu hreint allt var...humm....en allavegana...hann var ekkert smá hissa á þessu sameiginlega eldhúsi...spurði svo hvort það væri ekki massa skemmtilegt á morgnana...ég sagði nú að fólk vaknaði á mjög ólíkum tímum svo það er ekki mikið um partý á morgnanna...en það hýtur allavegana að vera geðveikt stuð á laugardagsmörgnum...ég gat ekki annað en samþykkt það...ég veit ekki hvort við vorum að hugsa um það sama...hann kannski meira að sjá fyrir sér nývaknað fólk á meðan ég svona meira að sjá fyrir mér ósofnað fólk....
Í morgun var allur gangurinn vakin upp með látum rétt uppúr klukkan átta...einhver brunabjöllu viðgerðar skoðunar eitthvað...það var svolítið skemmtilegt að standa útá gangi með öllum hinum myglusveppunum á ganginum og geta hreinlega ekki gert annað en bara hlegið...og svo var partý í eldhúsinu...allir að fá sér morgunmat á sama tíma...farsímarnir hringdu svo allir í kór klukkan níu til að vekja liðið...en öll vorum við auðvita löngu vöknuð...rafmagnið sló út...enda öll rafmagnstæki í gangi í einu...og ennþá var hlegið...og enginn að treysta sér að skipta um öryggið...okkur tókst það samt á endanum...og í allri ringulreiðinni var mér hugsað til Auðunar...sem sá þetta fyrir...
Þar sem dagurinn byrjaði mjög snemma hjá mér er ég líka búin að gera allt sem ég þurfti að gera í dag...ég er sem sagt komin í sumarfrí...gvöð hvað ég er fegin...
Ljósin á ströndu skína skær
Skipið það færist nær og nær
og þessi sjóferð endi fær.
Ég búin er að puða og púla
Pokana að hífa og dekkin spúla.
Reifur stend í stafni hér
Strax og að landi komið er
Bý ég mig upp og burt ég fer.
Ég fer í fríið
Ég fer í fríið
Ég fer í fríið
Ég fer í fríið
Ég fer í fríið
Ég fer í fríið
Óþolinmæðin í mér býr
Áður en rennur dagur nýr
Skal ég mér eiga ævintýr.
Ég fer á ball og drekk og dansa
Mér dembi út í stelpufansa.
Hafgúuvæl og vindagnótt
Vorum mín tónlist hverja nótt
Nú skal það breytast býsna fljótt.
Ég fer í fríið
Ég fer í fríið
Ég fer í fríið
Ég fer í fríið
Ég fer í fríið
Ég fer í fríið
Ljósin á ströndu skína skær
Skipið það færist nær og nær
Og mér í brjósti hugur hlær.
Allt sem ég þrí upp þau fylla
Og mína löngun magna og trylla.
Lengi ég beið og loksins er
lagt þetta alt að fótum mér
Ég má þess njóta nú og hér
Ég fer í fríið
Ég fer í fríið
Ég fer í fríið
Ég fer í fríið
Ég fer í fríið
Ég fer í fríið