Around the world on bikes...

Hádegi...

Bork nýkomin af sjúkrahúsi vegna magasárs er algjörlega búin að breyta matarræðinu... hættur í beikoninu og komin í fransbrauð með miklu smjöri og súkkulaði... allt á uppleið hjá stráknum... hann átti ekki til orð yfir harðfisknum sem við Ragga borðuðum í hádeginu... that will kill you... var hans kalda mat... þegar Ragga bauð svo öllum að prófa afþakkaði hann pent... sagði hinum að það væri sko allt í lagi fyrir þá að prófa því... "lífið er hvort sem er sjúkdómur sem smitast við kynlíf og endar í 100% tilfella með dauða"...
jamm hér ríkir mikil bjartsýni og gleði svona í prófavertíðinni... engin kvíði og allir í massa stuði... annað kvöld er svo kökkenmöde og fullt af straffeölum... en einhverjum fannst við hæfi að benda á að á prófatímabilinu er ekki í lagi að vera með læti á eldhúsinu á kvöldin... og þótti í beinu framhaldi af því mikilvægt að taka fram að til þess að halda í þá reglu sé sniðugt að banna krónuleikin framyfir próf... og gítarleikur með tilheyrandi söng líka á bannlistanum... svo litu allir í átt að íslendingunum... sem sátu þvílíkt saklausar og borðuðu harfiskinn og þóttust ekki skilja dönsku... við fáum okkur bara lambakjöt í öðru eldhúsi á morgun...

I have been to....

Þetta var helgin sem aldrei mun gleymast... þó hún hafi byrjaði samt á smá minnisleysi hjá sumum ;) Ferðalagið hósfst hér á kökken 4 með frábæru þakkargjörðamatarboði. Átveislan fór vel fram, öll vorum við svo þakklát að við barasta höfðum ekki undan að skála fyrir gleðilegu lífi.
Vi skåler med vores venner og dem som vi kender. Og dem svo vi ikke kender dem skåler vi med... SKÅL! SKÅL!
Þegar fishermansið og gajolið og absentið var búið ákvað ein að fara í megrun...þessi megrun varð til þessa að kvöldið endaði hjá mér í að afmá rauðar slettur... ein saknaði íslenska lambakjötsins svo mikið að hún fann leið til að seðja aðeins lostann... og sú sem ekki hélt áfram ferðalaginu varð svo fegin þegar sjúkrahúsfarinn kom aftur heim með magasár að hún gat ekki fengið nóg af að knúsa hann og lofaði að sjá um eldamennskuna fyrir hann því hún er svo góð í að borða hollt... seinasta gellan skrifaði allt sem fram fór á bak við eyrað og fyllti inní eyðurnar daginn eftir...
Næsta skref var að ná fluginu... rétt fyrir brottför nennti ég ekki að ignora bankið á hurðinni og allar símhringingarnar lengur og dreif mig á fætur... vakti Röggu með látunum í mér... og hringdi í Ylfu til að tjékka á stöðunni... “hjá mér er allt á réttri tímasetningu, var að setjast uppí leigubílinn á leiðinni heim úr partýinu, á bara eftir að pakka” var svarið sem ég fékk...
Í leigubílnum á leiðinni á flugvöllinn hélt ég bara áfram að syngja eins og kvöldinu áður... en tókst þó að taka þátt í umræðunni um að íslendingar séu nú næstum búnir að kaupa alla danmörku... þegar við brunuðum framhjá fields hætti ég alveg söngnum og sagði “debenhams, owned by icelanders”... bílstjóranum til mikillar gleði...
Þó ótrúlegt megi virðast náðum við fluginu og fundum okkur í amsterdam seinnipartinn á föstudeginum... það að kaupa miða í lestina var þrautinni þyngri... allt of tæknilegt fyrir svona þunna verkfræðinema með líffræðing í eftirdragi... jæja en allt tókst þetta á endanum...
Við hittum svo Rebecu heima hjá henni og fengum LYKLA af íbúðinni hennar sem við fengum lánaða fram á sunnudag... föstudagskvöldið var svona frekar rólegt... borðuðum góðan mat og horfðum á Alien í sjónvarpinu... þeim sem finnst skrítið að horfa á sjónvarp í útlöndum verða nú að átta sig á að sjónvarp er gerviþörf sem ekki finnst í hversdagslífi ferðalanganna og því svona sparidæmi sem gaman er að njóta þegar verið er að gera sér glaðan dag...
Vöknuðum svo ofur hressar á laugardagsmorgun og drifum okkur af stað að skoða borgina... en svona til að halda spennunni læstum við lyklanna inni... til að muna eftir svona stuttum ferðum verður að gera eitthvað róttækt til að gleyma ekki... röðin á Önnu Frank safnið var svo alltof löng og við vissum ekki alveg hvar Van Gogh safnið var... svo við röltum bara um og skoðuðum í búðir... versluðum ekki svo mikið... bara nokkra minjagripi eða gullskó fyrir prinsessur...
Eyddum svo svona quality time saman í stigaganginum á meðan við biðum eftir lyklasmið til að hleypa okkur inn... skelltum okkur svo út að borða þegar lyklarnir voru komnir í höfn... þvílíkt þakklátar yfir því... enda þakkargjörðarhátíðar-helgin og því um að gera að vera þakklátar...
Gerðum svo aðra tilraun til að kíkja á Önnu Frank safið á sunnudagmorgun og viti túristar, engin röð... safnið var flott og mér tókst að troða mér inná svona þúsund kínverskar ljósmyndir með því að vera með smá show fyirr framan safnið þegar túristabáturinn sigldi framhjá... vona bara að kínverjarnir hafi ekki misst af því að taka eftir safninu vegna látanna í mér...
Hlupum svo í gegnum rauðahverfið frekar sorgmæddar yfir því sem fyrir augum bar á leiðinni á lestarstöðina... náðum svo barasta líka flugvélinni heim... en svona til að loka hringnum kom ekki allur farangurinn með til Köben... Sigga var búin að hafa miklar áhyggjur af að vera stoppuð í tollinum og tekin í tjékk því hún var með svo grunsamlegan bakpoka... en til allrar guðslifandi lukku kom hann ekki með og því var hún ekkert stoppuð og fær hann bara sendan heim við fyrsta tækifæri...
Amsterdam er rosalega flott borg... eins og svo oft er sagt þá segir ein mynd meira en þúsund orð... svo ég setti inn nokkrar myndir á netið... man bara ekki hvar þær eru... en set inn link um leið og ég finn þær á veraldarvefnum...fann þær... hér

Open the door or I´ll.........

Neibb, það eldast víst ekki af manni heimskupörin. Fór út í gærkvöldi og um leið hurðin lokaðist var mér hugsað um lyklana. Hvar voru þeir?! Jú jú, þeir héngu á lyklakisunni við hliðina á aukalyklunum INNI í íbúðinni. Oh, ógeðslega svekkjandi! Er rúmlega þrítug og enn að læsa mig úti. Það sem aumingja foreldrar mínir þurftu oft að hugsa um að skipta um lás á íbúðinni þar sem yngsta dóttir þeirra var alltaf að týna sínum lyklum. Ætli ég hafi ekki fengið fyrsta lykilinn (í band um hálsinn að sjálfsögðu) 4 eða 5 ára gömul og hef síðan þá týnt lyklum, eða gleymt þeim heima, reglulega. Dáist endalaust að henni Gunnu minni, sem þjáist af sama sjúkdómi, því hún er svo endalaust úrræðagóð. Þegar hún var enn í foreldrahúsum lét hún smíða grilljón lykla þannig að hún þurfti aldrei að viðurkenna að hún týndi lyklinum sínum og slapp alveg við skammir.

Ég er þó ekkert skömmuð lengur, enda löngu hætt að segja foreldrum mínum frá því þegar ég læsi mig úti :-) En hvað var til ráða í gær. Var einmitt á leiðinni út til að hitta vinkonu mína og það er ekki að spyrja að því, tvær íslenskar gerplur eru ekki lengi að leysa svona smávægileg vandamál. Að sjálfsögðu vorum við ekkert að hringja í neina lásaþjónustu því það kostar svo mikið. Fyrst skelltum við okkur í bíó og svo hringdum við á hjá nágranna mínum sem hleypti okkur inn í stigaganginn. Hún var afar indæl og hleypti okkur í gegnum í íbúðina sína til að komast út í bakdyraganginn og fylgdist spennt með þegar við Aníta byrjuðum á að reyna brjóta hurðina upp. Fyrst reyndum við að taka á henni (hurðinni) með skriðþunganum en það eina sem kom út úr því var risastór marblettur á upphandlegginn á mér. Þá var bara að rifja upp allar löggó-bóa myndirnar sem maður hefur séð um ævina, segja "Open the god damn door or I´ll brake it up" í huganum og svo bara sparka þar sem lásinn var. Þetta tók ekki nema tvö spörk og þegar hurðin opnaðist flæddi um mig mikil sigurtilfinning og gleði. Ellen nágranni var meget imponeret yfir þessum íslensku gerplum. Aníta vóg og mat skemmdirnar, lagaði það sem var hægt á staðnum og svo kemur Sigurður við tækifæri og lagar restina.

Jebb, ég er ekki búin að taka lýsi nema í innan við viku....Drulluvirkar!!!

Any ways, ég heiti Elín og læsi mig reglulega úti!!!

Dömu hvað....

Ég að skrá mig í dömu skóla... sko ég á bara ekki til orð... ég er bara alvöru kona... svona í tilefni dagsins í dag og á morgun og hinn og hinn læt eftirfarandi útskýra mál mitt

I dag (og á morgun og hinn og hinn og hinn) er det "Skide Godt Udseende og Pisse Kloge Kvinders Dag".

Kender du forskel? ....på damer og rigtige kvinder ?

Damer:
Hvis du ved et uheld har kommet for meget salt i den mad, du er ved at lave, så
læg en rå kartoffel i gryden. Den vil opsuge det overflødige salt.
Rigtige Kvinder:
Hvis du ved et uheld har oversaltet maden, er det sgu bare ærgerligt..

Damer:
En nem kur mod hovedpine er at skære en limefrugt over og gnide den mod panden.
Det klarer hovedpinen.
Rigtige Kvinder:
Tag en limefrugt, bland den med tequila og chili og drik det. Du har ganske vist
stadig hovedpine, men nu er du ligeglad.

Damer:
Ved at lægge en lille skumfidus i bunden af en vaffelis kan man undgå, at isen
drypper.
Rigtige Kvinder:
Sug for pokker isen ud af bunden af vaflen. Du ligger alligevel garanteret på
sofaen med benene oppe og spiser den.

Damer:
For at undgå at kartofler spirer, kan man lægge et æble ned i posen til dem.
Rigtige Kvinder:
Køb kartoffelmospulver og opbevar det i et køkkenskab i op til et år.

Damer:
Kager får en pæn, blank overflade, hvis de bliver penslet med æggehvide inden
bagningen.
Rigtige Kvinder:
Der står ikke noget på Amos færdigblandinger om at kagen skal pensles. Lad være
med det.

Damer:
Hvis du har svært ved at åbne et glas marmelade el.lign.kan du prøve med
gummihandsker på. De giver et bedre greb.
Rigtige Kvinder:
Bed din lækre, rige single-nabo om at åbne det!

Damer:
Lad være med at hælde overskydende rødvin ud. Det kan fryses i isterningbakker
og bruges senere i saucer.
Rigtige Kvinder:
Hvad er overskydende rødvin?

Það er sko ekki alltaf tekið út með sældinni að vera námskona...

Man eftir timabili á námsferlinum þar sem ég var ekki mjög sammála fræðunum... var þá að reyna að skilja statistical mechanics... missti mig aðeins og reif nokkrar blaðsíður úr einni af bókinni minni... krumpaði þær og henti þeim í ruslið... stappaði svo ofaná restinni af bókinni...
Þrjár vikur eftir þetta atvik var ég hætt í skóla og ráfaði um í leit að annarskonar viðfangsefni... aðallega var ég þó bara á djamminu í reykjarvíkinni góðu...
Varð að lokum leið á ráfinu og fór aftur í skóla... gleymi aldrei undrunarsvipnum á kennaranum mínum þegar hann spurði af hverju ég væri ekki búin að skila seinustu þremur heimaverkefnunum og ekkert látið sjá mig... í sakleysi og hreinskilni svaraði ég nefnilega “æji mér fannst þetta allt svo mikið bull að ég reif bókina og henti henni”... ertu að grínast... “neibb, en alveg rólegur ég ætla að kaupa nýja eftir mánaðarmótin”...
Þessi önn varð aðeins dýrari en aðrar því ég þurfti að kaupa auka námsbók auk þess sem stílabækurnar fóru meira og minna í að krumpa saman blöðin eða rífa niður í öreindir þegar ég reyndi að gera heimadæmin...
Jæja, mér tókst svo að redda þessari önn sumarið á eftir... þá bara á þrjóskunni að ætla að klára þetta helv”&%... ekki neinum ofurgáfum... hugsa að þrjóskan hafi komið mér miklu lengar en eitthvað gáfudæmi...
Það var svo ekki fyrr en nú að ég rakst á þetta viðfangsefni aftur í náminu... en í þetta skipti svona aðeins til upprifjunar fyrir áframhaldið... og núna er byrjað á smá varnaðarorðum:
In his book, States of Matter, [(1985), Prentice Hall, Dover] David L. Goodstein writes; “Ludwig Boltzmann, who spent much of his life studying statistical mechanics, died in 1906, by his own hand. Paul Ehernfest, carrying on the work, died similarly in 1933. Now it is our turn to study statistical mechanics. Perhaps it will be wise to approach the subject cautiously”
Þetta hefði haft mikla þýðingu fyrir mig að vita þarna í “gamla daga”... hehehehehehehe...

Hef annars verið að fara í gegnum gamlar ör-glósur í öllum námsbókunum mínum... ferlega fyndnar því til að muna hef ég í gegnum tíðina snúið fræðunum yfir í eitthvað sem er að gerast í lífi mínu þegar frumlesturinn átti sér stað... skólabækurnar því svona öðruvísi dagbók...
Í lífrænu bókinni minni fann ég þessa glósu
”þrátt fyrir að mannekjan hafi drukkið mikið af ethanóli í gegnum tíðina lítur líkaminn ennþá á ethanól sem eitt af hættulegastu efnunum og stoppar því allri annarri starfsemi til að losa sig við það. Þess vegna má ekki taka lyf með áfengisinntöku því lyfin safnast upp í líkamanum á meðan verið er að vinna úr áfenginu, OG þess vegna hættir heilinn að vinna eðlilega og manneksjan á það til að haga sér furðulega og segja skrítna hluti og safnast þá minningar af furðulegum atvikum upp í heilanum. Þegar áfengi er í nánd snýst allt um það”
Þetta var skrifað eftir partý á Eggersgötunni þar sem mér fannst ég bara ekki fá nógu mikla athygli... svo ég stóð uppá borði og söng mest allt partýið og tók svo einhverskonar flikk flakk og hlejarstökk þegar ég datt um sjálfa mig á leiðinni út í leigubílinn... góðir tímar!!!!
Skemmtilegast við þessar glósur er hversu vel þær sýna hvað skóli lífsins skilur mikið eftir sig... ég alveg hætt að detta um sjálfa mig og svoleiðis... hehehehehehe
At the end of the day verð ég nú að viðurkenna að það sé miklu auðveldara að læra á bókina en lífið... en bæði jafn skemmtilegt, það segir mamma mín að minnsta kosti!!! Og kannski góð leið að læra á lífið með því að troða því svona inní bækurnar... hver veit?

Nördakona...

DTU líkt og Ísland á það til að vera ferlega karllægur heimur. “Ekki beint staður fyrir stelpur” segja sumar manneskjur. “Eru ekki bara nördar í DTU sem í byrjun eru ekki svo ruglaðir, en verða það eftir stutta námsdvöl þar?”
Ætli ég sé minni stelpa af að taka þátt í þessari trukkamenningunni...???

Hér eins og annars staðar skiptir kyn ekki svo miklu máli. Oftast bara spurning um að öðlast virðingu og traust frá fólkinu í kringum sig. Finnst samt stundum að ég þurfi að vinna harðar og gera betur en strákurinn við hliðina á mér til að öðlast sömu virðingu og hann. Getur verið frekar pirrandi, en ég tek áskoruninni með glöðu geði í von um að ég geti með þessu erfiði mínu breytt einhverju fyrir komandi kynslóðir. Ég á mér draum...
Anyhow... það er auðveld lausn að taka bara þátt í karlamenningunni á eins karllægan hátt og kona getur. Undirstrika alla karlaeiginleikanna í sjálfri sér í orðum og gjörðum til að falla betur í hópinn. En er það svo gaman? Týnist ekki bara hluti af mér í svoleiðis leikriti?
Svo er líka svo erfitt að átta sig á hvað er karlaeiginleiki og hvað konueiginleiki. Hef kannski ruglað sjálfa mig frekar mikið á vangaveltum um hvað er karllegra og hvað kvennalegra, því sama hvað ég reyni fell ég ekki fullkomlega í hvorugan hópin. Ég er bara einhverskonar sambland af því sem ég hef lært af fólkinu í kringum mig, konum og körlum.

Viðurkenni fúslega að ég er nörd í klassíska skilningnum, hef áhuga á hlutum sem mörgum finnst kannski pínu erfitt og óþarfi að skilja. Hvort ég sé orðin rugluð eða ekki af þessari nördamenningu ætla ég ekkert að vera að pæla í ;) hehehehe...
Hvað kyn mitt varðar er ég og verð alltaf stelpa. Er mjög stolt af því og það er ekki hægt að taka það frá mér!!! Málið er kannski að undirstrika hversu einstök ég er í þessum karrlæga heimi með því að afhjúpa kvennleika minn í klæðaburði. Þröngir toppar til að leyfa brjóstunum að segja allt sem segja þarf. Æfa svo svona mjaðmalabb og ganga um í pilsum svo mjaðmirnar geti tekið undir með brjóstunum.
Einhver mun sennilega segja að það er ekki útlitið sem skiptir máli heldur hin innri kona. En eins og svo oft er sagt... fötin skapa manninn... eða í mínu tilfelli fötin skapa KONUNA!!!! Get svo bara gert nákvæmlega það sem mér sýnist, hvort sem það telst meira karllegt eða kvennlegt, án þess að nokkur efist um kvennleika minn!!!

Vér mótmælum allar!!! Heyri ég hina ólíku eiginleika mína öskra. Mótmæli því að þurfa að skilja kyn mitt eftir heim til að falla inní hópinn...

Culture day

Well girls, my initial idea for the culture day was the Chagall exhibition at the Arken. But since tomorow is the opening day for Tivoli I think that is cultural nok for us. We can cruise tivoli for a while and then go to that party if we are up for it.

So what do you say?!

Culture day for the bikingpiger coming up...

Yup, so we have to find something to do. My initial idea was going to be the Chagall exhibition at Arken but since Tivoli opens tomorow I think that is cultural nok for us. Then we could check out that party afterwards if we are up for it. So what do you girls think?!

hvað so.....

Jamm, Steinunn. Ég held svei mér þá að við ættum að kýla á þetta. Sé ekkert því til fyrirstöðu að við þróum eitt stykki nýja deild og með þína efnaverkfræði og mína þverfaglegu menntun erum við fullkomnar í verkið. Að ekki sé minnst á hvað við erum sérlega góðar í mannlegum samskiptum :-) Verðum að hafa föstudagsbjór til að halda starfsfólkinu okkar (við tvær) ánægðu, og ég er strax byrjuð að undirbúa kokteilpartýið við opnunina á deildinni. Þú sendir mér bara inn þinn hluta af boðslistanum.

Djö., hvað við verðum flottar!










Eyddi gærdeginum í gær í fullum salur af fólki með sama bakgrunninn... sami reynsluheimur... sama sálin...
Ferlega skrítið að vera allt í einu ekki svo mikið öðruvísi... en skemmtilegast var þó að sjá kómísku hliðina þessu öllu saman og hlæja svolítið af sjálfri sér... því eins og segir í laginu “ ég er bara spegilmynd af þér...” að sjálfsögðu skilgreinir uppeldið að vissu leiti hver við erum sem einstaklingar... og þar sem ég ólst upp á litlu skeri með öllu því fólki sem þarna var verð ég að viðurkenna að þarna voru allar spegilmyndir bakgrunns míns...
Sigga fékk smá móðursýkiskast yfir að vera að flytja aftur heim um jólin...”en ég er ekki með strípur og hef ekki farið í ljós ég veit ekki hvað lengi...I will never fit in” áttum svo allar ferlega bágt með okkur þegar gella í svo þröngum og flegnum bol að brjóstin einhvernvegin þrýstust afturábak og upp þannig að þau náðu að snerta bæði háls og nafla... hlóum af okkur sjálfum svona óstrípaðar og óútiteknar...
Svo mundi ég eftir sjálfri mér... plastkjólnum sem ég dýrkaði svo hér í den... hann hafði einmitt þennan brjósin afturábak og upp snerting við háls og nafla effect... hárið á mér stærra en ég veit ekki hvað með að minnsta kosti þremur ólíkum strípu litum... fór í ljós þrisvar í viku og mætti reglulega í líkamsrækt...leit í kringum mig og horfði á spegilmyndina...
Jæja, en lagið heldur áfram eins og lífið... “ég er bara ég, þú ert bara þú...” uppeldið hættir aldrei og fleiri ólíkar spegilmyndir hafa brotið sér leið inní líf mitt... ég ætla bara að vera ég... skal alveg taka að mér að vera “alveg orginal”... saman-límd spegilmynd ólíkra einstaklinga sem ég hef hitt á lífsleiðinni...
Ísland er land þitt því aldrei skalt gleyma, Ísland í huga þér hvar sem þú ferð... var ferlega hissa að labba ekki út á austurvöll þegar ég yfirgaf ballið...
Málið er dautt... og það KOSTAR EKKI NEITT að vera þú sjálfur hvar sem þú er... allavegana minna en HogM visareikningur ferðalanganna á ballinu í gær...

E-mail

Got the following letter to me student e-mail account yesterday...

Dear Sir/Madam,

Do accept my sincere apologies if my mail does not
meet your personal ethics. I will introduce myself as William, a staff
in the accounts management section of a well-known bank here in South
Africa.


One of our accounts with holding balance of $15,000,000
(Fifteen Million dollars) has been dormant and has not been operated
for the past 4 years.


From my investigations and confirmations, the
owner of this account a foreigner by name AustinMartins died in August
2000 and since then nobody has done anything as regards the claiming of
this money because he has no family members who are aware of the
existence of neither the account nor the funds. Also Information from
the National Immigration states that he was also single on entry into
the SA.


I have secretly discussed this matter with some of the bank
officials and we have agreed to find a reliable foreign partner to deal
with. We thus propose to do business with you, standing in as the next
of kin of these funds from the deceased and funds released to you after
due processes have been followed.


This transaction is totally free
of risk and troubles as the fund is a legitimate and does not originate
from drug, money laundry, terrorism or any other illegal act.


On
your interest, let me hear from you.

Regards,

William.


This just must be a joke...

OH yeah baby!!!

Yup, Sho og ég hittumst í spinning í gær og það var svoooo gaman. Bara spiluð 80's tónlist, alveg við mitt hæfi. Þurfti reyndar að passa mig að komast ekki í of mikinn fíling. Stóð mig að því að syngja með Duran Duran í hörku fíling og ég er ekki týpan til að syngja á almannafæri, enda hef ég ekki röddina í það. Held að tónlistin hafi, til allrar hamingju, verið það hátt stillt að enginn heyrði í mér :-)

Spinning er greinilega málið, amk til að halda sér í góðu hjólaformi! Stefni á þetta á þetta á fimmtudagskvöldum, 80's spinning!!! BARA COOL!

jamm og jæja

Gvöð hvað það er gaman að búa á kollegii... skilyrðislaus ást er eitt en skilyrðislaus vinátta annað... bæði jafn æðislegt á ólikan hátt... en með vináttuna... það er nefnilega ekki hægt að búa með vinum sínum og ætla svo að fara að vera í fýlu yfir morgunmatnum daginn eftir... gengur ekki upp svo vináttan verður einhvernvegin að vera skilyrðislaus...
Ragga, sem heitir annars Eva á dönsku því það er svo erfitt að segja RRRRRRR... átti samt setningu kvöldsins... Ok hún átti margar góðar setningar í kvöld... en sú sem tengist þessum pistli er eitthvað á þessa vegu... djöfull er æðislegt að búa bara með strákum þeir verða aldrei fúlir... þetta sagði hún rétt eftir að hafa slegið einn af drengjunum FAST utanundir fyir að koma með eina þá lélegustu pikkup línu ever... þessi athöfn vakti mikla kátínu og ennþá meiri SKÅL í boðinu...
Jæja, en þrátt fyrir fögur fyrirheit verð ég að vera róleg í kvöld og mæta alvarleg til leiks í lokaverkefnisvinnu á morgun... þarf nefnilega að hitta aðsotðarmennina mína fyrir hádegi og þarf því að finna einhversstaðar inní mér alvarlegheitin... reyndi að vera alvarleg í dag á fundi með leiðbeinandanum mínum og eftir fundinn spurði hann svo hvort ekki væri allt í lagi því ég virtist svo niðurdregin... erfitt að vera alltaf brosandi og ætla svo allt í einu að hætta því... sprakk náttúrulega úr hlátri við þessi komment og sagðist bara vera að reyna að vera "lidt mere seriös"... det bevöver du ikke var svarið og umræðan fór að snúast yfir í jólabjórinn sem kemur á morgun...
Livet er for kort til dårligt vin... svo það er bara mál að fara eftir því... hvort sem það er vínið eða eitthvað annað sem er dårligt... ætla því ekki að vera of alvarlega á morgun... en gott að anga ekki af kampsax stupunum... ikke???

It just does not cost a thing...

like we icelanders so often say... I am going to Amsterdam... this was decided in 5 min. and not a difficault decision beccause IT DOES NOT COST A THING!!!
 
eXTReMe Tracker