Around the world on bikes...

meira um lykla....

Gunna fór í jólaklippinguna í gær og tók Elínu með sér til að passa litlu dóttur sína. Eftir þessa fínu klippingu skundaði hersingin í átt að bílnum og illur grunur læðist að Elínu.

Elín: Heyrðu Gunna, ég held að ég hafi læst lyklana inni í bílnum.

Gunna: Nei nei, það er ekki hægt að læsa lyklana inni í bílnum. Engar áhyggjur, það er fjarstýring á honum.

Elín: Jú, ef maður læsir bílnum, stingur lyklinum í töskuna sína, grípur krakkann, hendir töskunni í bílinn og lokar bílhurðinni.

Er að vinna í næsta nýársheiti....

Jólin jólin!!!

Jólin eru alveg að koma...

1.
Se julen fra polyttens synspunkt
(duh-af-uh)
den er sgu ikke særlig sej
det er slut med fjanten, bare pa med vanten
eksamen må ik´gå skidt for mig

Andre går og får en lille fjer på
(duh-ah-uh)
men jeg bli´r klogere dag for dag
jeg kan ikke forstå at jeg kan
(aaaaah-aaaaah)
det er næsten for meget for en mand (kvinde)

2.
Tænk, hvis fysik var meget letter´
(duh-ah-uh)
og megamat det var en leg
så ku jeg bruge tiden, helt fladt på siden
pg hyggespise andesteg.

Men istedet vælger jeg at kæmpe
(duh-ah-uh)
For de kan ikke kue mig
jeg vil jule i sus og i dus
(aaaaah-aaaah)
Når min sidste edsamen er i hus

3.
Så er det tid til julefrokost
(duh-ah-uh)
med lækker mam og gode sild
der er godt til ganen og en tur i kanen
tømmermændén skyldes snaps med dild

Jeg vil hygge mig med gode venner
(duh-ah-uh)
langt væk fra bøger, sild og slæb
Det´mit ønske til dig lige nu.
(aaaaah-aaaah)
kærlig hilsen fra DTU

DTU
DTU
fra DTU
DTU
fra DTU...

Kærlig hilsen fra...
...fra DTU

Af Christian Schmidt, Melodi: Rap jul (Shu-di-dua)

Mæli með að læra þetta utanað og taka svo lagið í DTU búningnum um jólin heima :) Djö... verðum við flott í búningunum, hef heyrt að fólk falli fyrir búningum, kannski er þetta massa hösl-tækni að mæta í DTU búningnum á djammið í reykjavíkinni???

Vá hvað það er stutt í þriðja vers hjá mér... á morgun á morgun á morgun...

Annars missti ég mig aðeins á køkkenvagtinni í gærkvöldi... svona eins og mér einni er lagið... pakistaninn og pakistana-vinurinn á ganginum voru að elda sér kvöldmat á meðan þetta rugl mitt stóð sem hæst (NB! kvöldmatatími hjá þeim er um miðnætti). Ég var í óða önn við að sópa gólfið þegar gæjinn spurði af hverju ég væri eiginlega að þessu því køkkenvagtin þarf ekki að gera það... ég sagði að það þyrfti einhver að gera það því það var hætt að sjást í gólfið fyrir bjórtöppum... hann svaraði hinn ánægðast að það væri nauðsynlegt að hafa að minnsta kosti eina stelpu á hverju eldhúsi til að gera svona hluti... ég varð pínu reið og tókst á mjög penan hátt að útskýra fyrir honum að ég notaði ekki kynfæri mín til að sópa gólfið...
Jæja honum þótti þetta bara fyndið og umræðurnar fóru að snúast um heimalöndin... í pakistan búa hundruðir milljóna... hann sagðist hafa heyrt að allar íslenskar konur væru svona fallegar, spurði hvort það væri rétt og hversu margar við værum eiginlega... hundleið á þessu fegurðartali ákvað ég að svara í stærðfræðióvissubilum... ´
Fjöldi íslendinga er 0 plús mínus óvissubilið á fjölda pakistana... miðað við það er fjöldi íslenskra kvenna líka núll og því þessi meinta fegurð íslenskra kvenna ekki heldur til... en óvissubilið gefur að sjálfsögðu til kynna að fjöldi íslendinga gæti verið stærri en núll... og þar af leiðandi gæti fjöldi íslenskra kvenna líka verið stærri en núll... en fegurð er ekki hægt að setja upp í tölulegt form og þvi ekkert að segja til um fjölda fegurðar... íslengingar eru því til á einhverju óvissubili og því allt um þau ein stór óvissa... hver og einn sérstakt tilfelli útaf fyrir sig...
Þar sem ég nennti ekki að bíða eftir að eldamennsku pakistananna kláraðist lofuðu þeir að ganga frá í eldhúsinu fyrir mig þegar þeir voru búnir... og viti menn og konur... eldhúsið var gjörsamlega tipp topp þegar ég fór þangað í morgun... vona að þeir hafi þryfið alveg óháð kynfærum..........

Próf og aftur próf...

Það er eins gott að muna eftir að læsa herberginu sínu hér á gangi 4... því ef svo óheppilega vill til að einhver gleymir að læsa gæti sú/sá hin/hinn sama/sami komið að hurðalausu herbergi... ég hef ekki tölu á hversu oft var sagt í nótt "were is your door?"...
Jæja en það er ótrúlega gaman að vera til núna... eins og sigga orðaði það svo vel í gær "finnst ykkur ekki gaman að læra undir próf krakkar... æji þið vitið rifja upp allt sem þið eruð búin að vera að læra seinustu mánuðu"... jamm það er örugglega gaman... ég er meira fyrir að læra eitthvað nýtt og því er það frumlestur og aftur frumlestur sem blívar!!!!
Bork var þvílíkt umhyggjusamur í gær... ragga var eitthvað stressuð yfir að vera að fara í próf daginn eftir og hann bauðst til að gera hvað sem er til að hjálpa henni að róa sig... hvað er svo besta leiðin til að róa taugarnar? Júbb... kynlíf... hann roðnaði alveg niður í tær þegar ég sagði honum hvað hann þyrfti að gera... sagðist vera til í að gera allt annað en það, en ég held hann hafi aðeins verið að ruglast þegar hann sagði það... en hann bauðst til að vakna í morgun til að vera viss um að raggan hans hefði örugglega vaknað til að fara í prófið... finnst ykkur hann ekki sætur?
Pikköpp-línurnar voru rosalegar í gær... enda allir í prófastressi hér og eins og áður sagði er bara ein lausn við því ;)... strákarnir eru allir búnir að lesa "the icelandic sagas", en voru samt ekki í stuði til að tala um innihald þeirra... allir að fara að flytja til íslands um leið og þeir eru búnir að barna eina íslenska ;)... augu er bara svo falleg... og það elska allir alla...
Jæja en það er líka góð leið til að halda geðheilsunni í prófunum að fá sér einn bjór fyrir svefninn... og það er mjög góð stemning fyrir því á eldhúsinu mínu...
 
eXTReMe Tracker