Around the world on bikes...

Húsráðspistill ?!

Tja, veit það svei mér þá ekki. Ég er orðin svo gömul og vitur (eins og kínverjinn sem vann með mér í fyrra segir) og er troðfull af góðum ráðum á svo mörgum sviðum. Ætli það sé ekki skynsamlegt að láta yfirskriftina vera Neytendahorn Elínar? Segjum það amk í bili.

Neytendahorn Elínar

Fyrsti pistillinn verður helgaður hreingerningum því kalkhreinsun á baðherbergjum er flestum okkur sem búum í Danmörku ofarlega í huga. Hægt er að kaupa í búðum hin ýmsu eiturefni sem eiga að vinna á kalkinu sem safnast ótæpilega mikið á baðherbergisflísum hér því það er svo mikið kalk í vatninu. Þessi efni eru dýr og flest afar óumhverfisvæn vegna allra eiturefnanna sem þau innihalda.

Hvernig er þá hægt að halda baðherberginu snyrtilegu á sem umhverfisvænlegan hátt? Hrefna frænka mín, sem býr í Aarhus, gaf mér eftirfarandi góða ráð:

Takið sítrónu, skerið í tvennt og nuddið yfir kalkblettina. Síðan er nóg að skola með vatni yfir flisarnar. Ég hef líka prófað að nota bara safann úr sítrónubelg og það drulluvirkaði líka. Þar sem þessi aðferð inniheldur engin efni skaðleg náttúrunni má framkvæma hana eins oft og ykkur lystir.

Svo mæli ég líka með að kaupa umhverfismerktar vörur, þe vörur sem eiga að vera umhverfisvænni en aðrar vörur. Ég keypti um daginn td vöru merkta "Svanen" sem er det Officielle Nordiske Miljömærke. Ef svo lesendur eru í vafa um e-r efni sem hreingerningavörur þeirra innihalda, er bara um að gera að fletta þeim upp á netinu. Endalaust hægt að leita sér upplýsingar og um að gera að nýta sér það.

Lifið heil!

Fegurðin kemur að innan...

Ég taldi mér trú um að það væri bara ljótt fólk sem trúði því að fegurðin kæmi að innan á viðkvæmu árunum. Var þó löngu búin að sætta mig við að svona liti ég bara út og þyrfti að lifa í ljótleika til dauðadags.

Hreint Ísland er það sem umhverfissinnarnir eru nú að reyna að berjast fyrir. Og ég er alveg til í að taka þátt í þessum bardaga. En er ekki eins með þennan hreinleika og fegurðina, kemur að innan?
Ég verð alltaf eins hissa þegar ég heyri af biluðum eldavélum sem urðu til þess að heilu eldhúsinnréttingarnar voru rifnar niður til þess að koma nýju eldavélinni fyrir. Ef sturtuhausinn bilar er ekkert annað í stöðunni en að taka baðherbergið í gegn og skipta út öllu. Allar þessar framkvæmdir áttu hvort sem er að gerast einhverntíman og því tilvalið að láta smá bilanirnar hvetja til STÓRframkvæmda. Og það má að sjálfsögðu ekki gleyma öllum hvítu heimilistækjunum sem eru svo yesterday og eiga hvergi heima nema á ruslahaugunum. En þetta er bara svo mikil synd. Ruslahaugarnir fyllast af nýtanlegu rusli og náttúran belgist út af “ofáti” og týnist í nýjustu tísku íbúanna.
Ég er yðulega spurð af útlendingum hvort það þurfi ekki allir íslendingar að keyra um á jeppum. Einu sinni var svarið nei, því þrátt fyrir mikinn snjó á veturnar værum við svo færir ökumenn að það væri ekkert mál fyrir okkur að tækla smá snjó á fólksbílum. Nú þegar snjóleysi hrjáir Íslendinga og enginn kemst almennilega á skíði, á meirihlutinn orðið jeppa, eða sex hjóla trukka sem brenna bensíni eins og þeir eigi lífið að leysa.
Innfluttingur er orðin miklu meiri en útfluttningur og mengunarspúandi fluttningsskipin sigla fullhlaðin af varningi til landsins og hálftóm tilbaka. Heimilin þurfa að vera í nýjustu tísku, íbúarnir þurfa að vera í nýjustu tísku og bílarnir þurfa að vera í nýjustu tísku....nýtt nýtt nýtt!!! Og restin endar á ruslahaugunum.
Umhverfisráðherra hélt svo blaðamannafund um að það væri nóg svigrúm til frekari framkvæmda á Íslandi. Ástæðan? CO2 útblástur á Íslandi er svo miklu lægri en í lög gera ráð fyrir og því um að gera að auka útbláturinn!!!
Aðeins ein jörð hljómaði þegar ég var barn en er nú orðið aðeins eitt Ísland.

Eftir því sem ég þroskaðist betur í ljótleikanum gerði ég mér grein fyrir að flott hulstur væri nú stundum jafnvel til trafala. Stundum á fallegt fólk það til að vera sett á einhvern svona stall og óbeint beðið um að segja ekki mikið svo hinir geti bara notið útsýnisins.

Íslensk náttúra er í flottu hlustri og oft sett á þennan stall. Enginn hlustar á náttúruna en allir vilja njóta útsýnisns. Og náttúran varður einhverskonar súludansmær í karllægri veröld. Óraunveruleg brjóstastækkun á hálendinu kæfir tilgerðaleysi innri hreinleikans. Í von um að nógu stór typpastækkun (álver) fullnægji brjóstagóða hálendinu líður yfir hugmyndabankann því allt blóðflæðið rennur í átt að risi stóriðjunnar.

Eftir því sem fleira fólk kíktu við í veröld mína varð mér þó betur og betur ljóst að fegurðin kemur svo sannarlega að innan. Hulstrin urðu eitthvað svo minniháttar í samanburði við margslungna persónuleika.

Landið er hulstrið og þjóðin persónuleikinn. Er ekki komin tími fyrir Ísland að segja skilið við táningsárin. Átta sig því að innri fegurð stuðli að sannri fegurð. Hættum að tapa okkur í óhreinni neysluhyggju. Byrja á því að finna ynnri hreinleikann. Þroskuð þjóð sér að brjóstastækkanir eða typpastækkanir bjarga ekki sjálfsmyndinni. Hrein þjóð.... hreint land!!! Seljum okkur dýrt. Seljum það sem í okkur býr en ekki hulstrið... virkjum hugann :)

að vera eða ekki vera... umhverfisvæn

Nú er sumarið komið í Danmörku... í gær var sól og blíða allan daginn, hitinn var um 18 gráður... ég fór á peysunni út og kom ekki heim fyrr en seint í gærkvöldi og þá var ennþá nógu hlýtt til að vera bara á peysunni... þó svo það sé æðislegt þegar það er hlýtt á daginn þá má segja að það er svo miklu betra þegar það er orðið hlýtt á næturnar líka... það er nefnilega svo ferlega böggandi að vera alltaf að krókna úr kulda uppí rúmi...

En við fórum í skóleiðangur í gær, ég og Elín... við náðum að kaupa fullt af dóti og verðum svo rosalega flottar á árshátíðinni!!! Í ljósi allra umræðna okkar á milli um óumhverfisvæna lifnaðarhætti, sem felast aðallega í of mikilli neyslu, var þessi bæjarferð okkar frekar kómísk... upphaflega var ætlunin að kaupa "bara" nýja skó fyrir árshátíðina en það var ekki liðin langur tími áður en innkaupapokarnir voru orðnir margir og fullir af allt öðru en skóm... "þessir eru svo ódýrir að þeir teljast eiginlega sem einnota, og þó þú notir þá bara á árshatíðinni getur þú bara hent þeim svo"... ekki alveg í anda umhverfisvænu stefnunnar sem við erum að reyna að finna okkur í... komment eins og "það er alveg að fara að loka og við töpum bara tíma á svona hangsi" eru líka alveg útúr umhverfisvæna-kortinu en laumuðu sér inní æsinginn í gær... það er ekkert smá auðvelt að sogast inní neysluna... en okkur tókst þó báðum að finna "margnota" skó fyrir árshátíðina svo við höfum ekki alveg tapað baráttunni við neyslusamfélagið ennþá... sólarpúður og bólufelari, ostar á svo góðu verði og glans í hárið fengu þó að fljóta með... og svo fékk ég nano-ipodinn minn aftur úr viðgerð... allt bráðnauðsynlegir hlutir og alls ekki merki um óþarfa neyslu ;)

megrun hvad!!!????

Thann 6 mai verdur haldin megrunarlausi dagurinn... frabært framtak... mer finnst ad vid eigum ad halda uppa thennan dag med thvi ad fara ut ad borda eins og okkur bikingpium er einum lagid ;) verdur ad vera all you can eat buffet!!!
Hugsa ad thad se litil hætta a ad hjolagellurnar detti i einhvern megrunargir... vid tøkum bara eina og eina hjolaferd til ad halda okkur hraustum :) en finnst samt malid ad sina samstødu i thessari barattu gegn megrunum og borda yfir okkur thennan dag (...likt og adra ;) )

www.likamsvirding.is

Tæknivædd íbúð í Ravnsborggade 12 A

Loksins, loksins, loksins!!!!
Við erum komin með nettengingu og það meira að segja þráðlausa. Okkar tenging gengur miklu hraðar en ólæstar tengingar nágrannanna.......

Er annars ferlega ánægð með páskana og er alveg að komast í slíkan og þvílíkan vorfíling. Fór í göngutúr um vötnin (komin í stríð við ístruna) og það eru komnir knúbbar á tréin. Nú fer allt að springa út!!

Laugardaginn síðasta fór ég með Laurie í hjólatúr og við hjóluðum út um allt í sólinni og enduðum á Nyhavn. Þar keyptum við okkur kaldan öl í sjoppunni og sátum kanalmegin þar til Christian hringir í okkur og segist vera búinn að taka frá borð fyrir okkur á veitingastaðnum sem hann vinnur á. Við sátum þar í dágóðan tíma og Christian sá okkur fyrir ölinu. Alveg ágætt fyrirkomulag.

Við BR fengum svo okkar fyrstu sunnudagskaffigesti síðustu helgi og Steinunn fær aftur prik fyrir að deila. Þetta var æðislegur eftirmiðdagur og kvöld. Þurfum að gera þetta oftar, það er sko alveg rjómaljóst.

Annars lofa ég húsráðspistli í vikunni, kominn tími á að nota mínar sterku hliðar til að hjálpa öðrum.........

elin húsfrú...

Bless.....

Í morgun var grátt yfir öllu hér í Danmörku. Það ringdi þó ekki. Þegar leið á daginn braust sólin í gegnum skýin og nú er heiðskýrt og yndislegt veður.
Í morgun var ég frekar sorgmædd. Það komu þó engin tár. Þegar leið á daginn lifnaði yfir mér og nú hefur brosið náð að brjótast í gegnum sorgina.
Stundum finnst mér að heimurinn snúist í kringum mig... eins og ég sé teiknimyndapersóna þar sem litir heimsins endurspegla það sem mér liggur á hjarta :)

Já það er erfitt að kveðja... mamma og pabbi og auðun fóru heim í morgun. Ég efaðist um að ég gæti í alvöru kvatt, var hrædd um að ég myndii bara hlaupa upp rúllustigann og laumufarþegast með til Íslands. En einhvernvegin tókst mér að yfirstíga þessa erfiðu kveðjutilfinningu og hörfa aftur heim.
Það er þetta með stáltaugarnar... þó ég sé ekki með neitt silfur í tönnunum þá hef ég heyrt talað um stinginn sem kemur þegar silfurtönn bítur í álpapír... held að það sé svipuð tilfinning þegar stáltaugarnar gefa sig... það er eins og það fari um allann líkamann einhverskonar stingur þessa örstuttu stund sem stáltaugarnar halda ekki...

Alveg eins og það eru órjúfanleg tengsl á milli hita og þrýstings eru órjúfanleg tengsl á milli gleði og sorgar. Það eru gleðistundirnar sem er svo sorglegt að kveðja,....
Jæja en það er ekkert annað í stöðunni en að byrja að njóta nýrra gleðistunda... life goes on ;)

...en það er gott að elska fjölskyldu eins og mína... sakna þeirra en hef þau hjá mér í huganum;) Einn af bíladiskunum var In Between Dreams með Jack Johnson... just love it... mér líður svona núna (frá mér til fjölskyldunnar):

“....Love is the answer at least for most of the qusetions in my heart
Why are we here? And where do we go? And how come it´s so hard?
It´s not always easy and sometimes life can be deceiving
I´ll tell you one thing, it´s always better when we´re together....”

same old same old...

er komin með síma aftur... sama gamla símanúmerið... fékk sent nýtt SIM-kort og mamma ætlar svo að skilja símann sinn eftir...
Annars er ég búin að redda öllu sem reddast getur eftir þjófnaðinn... eða allavegana því mikilvægasta... komin með nýtt þvottakort ;) ;) ;)

tilraunirnar ganga annars vel þessa dagana... er búin að vera á hlaupum á milli þess að vera í fríi (með mömmu og pabba, Auðuni og Steinari) og á fullu í verkefnavinnu... langt síðan ég hef komið eins miklu í verk á eins stuttum tíma... vá hvað ég á eftir að sakna stúdentalífsins þegar 9-5 alvaran tekur við...

það var samt sannkallaður föstudagsfílingur í liðinu á lab-inu rétt fyrir heimför á í gær... öll vorum við að reyna að klára eins hratt og við gátum og æslagangurinn var frekar fyndinn... allskonar sullum bull og vitleysa... rosalega gaman :)

Vá ég er svo þreytt... ætla að spila við gamla fólkið...

life can be so unfair...

Í dag hittumst við tvær stór(kostlegar) fjölskyldur úr hafnarfirðinum. Á uppvaxtarárum mínum bjuggu þessar tvær fjölskyldur hlið við hlið undir hamrinum og léku sér mikið saman. Það voru ljúfir endurfundir í Kongens Have í dag.
Fjölskyldurnar börðust í kubbaleiknum frábæra alveg þangað til að rigningin var orðin of mikil fyrir útiveru. Þá hlupum við öll í skjól inná Café Norden.
Ég hvarf örlítið aftur í æskuminningarnar þarna á kaffihúsinu. Allt í kringum mig voru sögupersónur barnæskunnar og í smá stund hurfu allar áhyggjur fullorðinsáranna. Það var ljúft að sleppa tökum af áhyggjunum þó ekki væri nema smá stund. Lýsti því meira að segja yfir þarna á kaffihúsinu að til að vera námskona þyrfti sko að hafa stáltaugar, fjármálin í rugli og það er eins og það sé aldrei hægt að taka sér frí frá verkefnunum, þau fylgja alltaf.
Það er því örlítil kaldhæðni í því að á meðan ég sat þarna í áhyggjulausri nostralgíu og kvartaði yfir lélegum fjárhag var töskunni minni stolið. Það má því eiginlega segja að ég hafi gjörsamlega verið rifin upp á rassgatinu útúr draumsýnum berskunnar og inní kaldann fullorðinsveruleikann. Sem betur fer voru bílaleigubíls-lyklarnir í vasanum mínum og allir húslyklar svo í bílnum. En leigu-peningarnir og þessar örfáu krónur sem ég ætlaði að lifa af það sem eftir er mánaðarins eru horfnar. Sömuleiðis öll persónuskilríki mín, fyrir utan passann sem var öruggur heima. Og svo auðvita síminn, með öllum símanúmerunum. SVEKKJANDI!!!! (NB! ég man engin símanúmer svo það væri ljúft ef síma-vinir mínir settu númerin sín annaðhvort hér í commentin eða sendu mér e-mail með símanúmerinu, steinunnd@hotmail.com)
Jæja ég valdi að ég ætlaði að vera reið til klukkan 20 og nú er klukkan meira en það svo málið er dautt!!!
Ég hef líka valið að trúa að peningarnir mínir séu núna í höndunum á einhverjum sem þurfti miklu meira á þeim að halda en ég. Ég er orðin svo vön að borða bara hrísgrjón, þetta er allt í lagi. Ég ætla líka að lifa í voninni um að veskið komi svo í leitirnar og eina sem verður horfið úr því séu peningarnir.
Peningar færa sko ekki hamingju en ég vona samt að þjófurinn njóti þessarar fölsku hamingju.

driving in my car...

seinustu dagar hafa verið frábærir... er búin að vera að KEYRA um stórkaupmannahafnar svæðið... get ekki annað sagt en að ég komi sjálfri mér endalaust á óvart með að rata bara svona uppúr þurru út um allt... kannski ekki alveg uppúr þurru þar sem ég er búin að hjóla miklu meira en ég gerði mér grein fyrir um nágrannasveitirnar... en þessar bílferðir hafa svona hjálpað mér að ná heildarmyndinni og er að upplifa alveg nýja kaupmannahöfn... það er svo rosalega margt að skoða!!!!!!!! ég bara verð að fá mér bíl einhvern hluta veru minnar hér í DK til að skoða restina af landinu... þó svo að ég hafi notið seinasta árs í botn með þessum endalausu ferðalögum mínum, get ég ekki annað en hugsað að kannski er ég að sækja vatnið yfir lækinn... ætla að vera duglegri að skoða DK!!!! ég er ennþá ákveðnari í að hjóla danmörku næsta sumar!!!
jæja en þessi endalausa gestrisni þreytir svo ég ætla ekki að skrifa meira og skella mér í bólið... góða nótt og gleðilega páska :)

Sjúkdómsgreining...

jú jú, hringdi í lækninn minn sem var búinn að skoða röntgenmyndirnar og gaf mér sjúkdómsgreiningu. Reyndar skildi ég ekkert af því sem hann sagði nema að það væri e-ð að bakinu á mér. Mín góða vinkona sem er læknir ætlaði að hjálpa til og fá mig til að spyrja hann að því hvort ég væri stigvaxandi þroskaheft á dönsku. Önnur góð ástæða til að læra þetta blessaða tungumál almennilega, hætta að leyfa "vinum" manns að hafa mann að fífli. Haugur!!!

Það er sem sagt e-r andsk. að mér og ég hlakka svo til að komast að því hvað það er. Gott að vita að ég er ekki búin að væla yfir ekki neinu í allan þennan tíma.

Annars búið að vera afar gestkvæmt hjá okkur á Ravnsborggade, mér til mikillar gleði. Held að Gerði og Marosi (ef má fallbeygja erlend nöfn) hafi tekist að skoða alla borgina á einni helgi. Þau redduðu okkur mas borði á spiseloppen og svo fórum við öll á Bakken á laugarskvöldið. Elín litla var dregin í fullt af skelfilegum tækjum með viðeigandi afleiðingum. Note to self; aldrei að borða stóran skammt af hakkabuffi með steiktum lauk, kartöflum og sósu áður en maður skellir sér í tækin....

Hlakka svo til að eyða páskunum með fjölskyldu og Steinunn fær sko prik fyrir að deila!!! Lambakjöt á diskinn minn! Namminamm!!

love actually....just is!!!!

var miklu fljótari en ég hélt ég myndi vera að KEYRA á flugvöllinn í dag... sat þar af leiðandi svolítið lengi og beið eftir ankomst-manneskjunni... það er dásamlegt að sitja og horfa á fólkið á flugvellinum... ástin einhvernvegin svífur um loftið í öllum sínum myndum... ástvinir að hittast aftur eftir aðskilnað... ástvinir að kveðjast og kvíða aðskilnaði... ástvinir að leggja saman af stað á vit ævintýranna... naut þess að sitja og fylgjast með fólkinu á flugvöllinum...

Gat svo auðvita ekki annað en hoppað í fangið á Steinari þegar hann loksins kom út um hliðið eftir seinkun á eftir seinkun... ekkert smá fegin að hann var kominn... og er bara sátt við að þurfa að fara nokkru sinnum á flugvöllinn og taka á móti ástvinunum týnast til mín...

conclution... love actually....IS :) gleðilega páska...

P.S. svo er bara fjölskyldumatarboð um páskana... allir velkomnir að vera með...uuu... fjölkyldu þó það sé ekki beint manns eigins ;)

kampsax ó kampsax

gvöð hvað ég elska að búa á kollegi-i... nú er laugardagurinn fyrir páska... fyrsti páskafrísdagurinn... og það þýðir að foreldrar íbúanna hér á eldhúsi 4 eru á leiðinni... sumir að koma að sækja ungana sína, aðriri að kíkja í heimsókn... en það æðislega er að í allan morgun er allt búið að vera á fullu... skúra skrúbba bóna... allt í einu er eldhúsið fullt af glösum og diskum og hnífapörum...
ryksugan er orðin hálfstífluð... þvottavélarnar hafa ekki undan... ruslagámurinn er að sringa... já það er nauðsynlegt að fá foreldra í heimsók stöku sinnum... svo kona drullist nú til að gera allt þetta sem á alltaf að gera á morgun...
en mér líður svo vel að finna að ég er ekki ein í ruslinu... það er gott að finna nördasamstöðuna...
en eldhús 4 gerir rosalega lítið af því að þrífa eldhúsið sitt... öll frekar svona afslöppuð (lesist löt) þegar kemur að því... þó svo að stundum heyrist "nei þetta er of ógeðslegt!!!"...jæja en eg er að vona að einhver af þessum foreldrum sem streyma hér inn um þessar mundir taki sig til og taki smá stormsveip í eldhúsinu... það hefur sko gerst nokkuð oft :)... áðan kom ein mamman í heimsókn til sonarins vopnuð skúringakústi og skúringafötu... kannski hún kíki í eldshúsið líka... ég þarf ekki að hafa áhyggjur af því að foreldrar mínir fari útí svoleiðis vitleysu... en það væri svo ágætt ef einhver önnur foreldri myndu gera það :) ég trúi á vonina :)

Jakvæda hlidin a lifinu

thad er dyrt ad lifa a thessari jørd... en thad er innifalin okeypis hringferd um solina a hverju ari :)

afmælisdagar eru godir... thvi fleiri sem thu att, thvi lengur lifir thu :)

hamingjan kemur inn um dyrnar sem thu veist ekki einu sinni af ad thu hefur opnad :)

folkid sem kemur of seint er oft mikid gladara en folk sem situr og bidur... svo thad er ekki svo sklæmt ad vera alltaf a seinustu stundu :)

thad getur verid ad thu sert stundum eina mannesjan i heiminum, en thu ert lika ef til vill allur heimurinn fyrir eina manneskju :)

sum mistøk eru bara of skemmtileg til ad gera thau bara einu sinni :)

ekki grata af thvi thvi er lokid...brostu af thvi thad gerdist :)

raunverulega hamingjusøm manneskja er su sem getur notid thess sem gerist thegar hun endurtekur ferdina :)

eda eins og vitur kona sagdi - thad ad vera hamingjusøm er akvørdun :)

Thad eru oftast litlu hlutirnir sem gledja... of mikid af øllu leidir oft af ser of mikid af valmøguleikum sem svo leida af ser stress... thad er best ad njota bara einfaldleikans :)

eigid goda helgi ;)

I dag vard sprenging!!!!!

Og shit hvad mer bra... en sem betur fer sprengdi eg bara blødru... en thad voru leidindar ammoniaks-fylu eftirmalar... svo thurfti eg ad sjalfsøgdu ad halda otraud afram... og næsta skipti hefdi thad ekki verid bladra sem hefdi sprungid ef illa hefdi farid... eg titradi af spenningi thegar eg beid eftir ad sja utkomuna... ákvardanir um framhald voru hadar hversu vel eg thekki frædin...jæja en sprengingarnar urdu ekki fleiri... og eg er ørugglega 5 kiloum lettari en thegar eg for ad heiman i morgun thvi eg er buin ad svitna svo mikid i dag...
Nu fer ad reyna a hversu mørg mistøk eg ma gera... uffamia... er komin med rebble klippingu eins og i Drømmen, vantar bara ad einhver kennarinn snui uppa eyrad a mer (drømmen er kvikmynd sem eg sa i vikunni og var inspiration fyrir nyja klippingu)...
Va hvad eg a eftir ad sofna snemma i kvøld... verd ad mæta klukkan 8 i fyrramalid og hitta Rasmus, 8 er mjøg snemmt i Steinunnar heimi...
well well well...langt sidan eg hef fengid svona alvøru adrenalin kikk... ferlega notarlegt svona eftir a ;)

danska ó danska...

Eftir að hafa verið í dönsku-fríi í þónokkurn tíma er nú komið fullt fart á dönskuna mína aftur... svo sem ekki í frásögu færandi... nema viðbrögðin... nú heyri ég stöðugt "gerðu það talaðu dönsku" ef ég ætla að hvíla mig og nota ensku...ástæðan???... framburður þinn er bara svo æðislegur, svona inná milli ertu alveg venjuleg með skemmtilegan framburð... og svo segir þú eitthvað algjörlega útúr kú!!!!!!!!...gaman af þessu... það er greinilega hin viðkvæma hlið á mér sem fólk vill sjá...
Því spyr ég mig... hvað er það sem ég svo á endanum huskes for... ekki bara hvað tungumál varða heldur bara svona almennt... er það meira ruglið, mistökin og asnaskapurinn sem situr eftir í minningu fólks??? ég meina í alvöru, þegar ég sit í gamla-vinahóp og umræðan fer á "ég-man"-skrið þá er það iðulega einhvað svona rugl sem fólk rifjar upp... já já og ég geri það sama... ótrúlegt hvað svona vanræðaleg móment geta fylgt konu alveg endalaust... en það er náttúrulega bara gaman af því...

"...Steinunn er skolens gale islænding. Hun er næsten aldrig i dårligt humör, så betegnelsen må betyde at hun er lidt småtosset, men det bliver man vel af, at være Björks lillesöster? Ellers er Steinunn en frisk og livsglad pige der kom til Ubberup med det formål at lære dansk. Hun skal jo studere medicin og vi kan med sikkerhed sige, at der bliver sjoft når doktor Steinsen laver et opkast af hvad patienten fejler. (Et opkast = en skitse)...."

Svona var Steinunni lýst eftir 4 mánaða dvöl í lýðháskóla...
Björks lillesöster því ég var alltaf í bölvuðu veseni með að vera íslendingur á skemmtistöðunum... það gerðu allir ráð fyrir að ég og Björk værum like this you know... endaði með að ég tók langa ættfræðiræðu Á DÖNSKU um skyldleika okkar Bjarkar... þetta þótti ein sú fyndnasta ræða í manna minnum þar sem ég kunni ekki alveg ættfræði á dönsku og sagði helminginn á íslensku... eftir það var ég alltaf bara litla systir hennar Bjarkar...
mér er lífsins ómögulegt að segja sjovt án þess að bera fram F...
og ég sagði einhverntíma yfir bekkinn í heimspekitíma að ég yrði að "lave et opkast" áður en ég skilaði inn einhverri ritgerð... það skapaðist rosa umræða um hvort ég væri eitthvað stressuð og ég fattaði ekki alveg að ég hafði sagt eitthvað vitlaust... og hélt bara áfram með útskýringar á að mér þætti eðlilegt að kasta upp áður en ég skrifði endanlega ritgerð... ég var spurð eftir þetta við ólíklegustu aðstæður hvort ég þyrfti að fá tíma til að kasta upp áður...
stærðfræðikunnátta mín var líka endalaust til umræðu... það var nefnilega þannig að kvöldið eftir að ég kom út sátum við og vorum að ræða um "trekanter"... ég sagði að ég kynni sko margt og mikið um þríhyrninga enda hefði ég eitt næstum öllum menntaskólaárunum í að skilja þá... mér fannst rosa gaman hvað allir sýndu mikla þolinmæði það kvöldið að hlusta á mig koma með innlegg í umræðuna... en það skildi sennilega enginn mikið af því sem ég sagði... því þegar ég fór að sofa spurði herbergisfélagi minn hvort ég hefði örugglega skilið allt sem fór fram.... jú jú trekanter... þú veist Steinunn threesome.... óóóóó!!! alveg frábært förste indtryk hjá mér!!!!!!!! það er stærðfræði í öllu og mér varð það aldrei eins ljóst og í lýðháskólanum því alltaf ef einvhernvegin var hægt að tengja það sem fram fór við stærðfræði var sagt, við erum ekki að tala um kynlíf núna steinunn ;)

Jæja en ég er mjög fallvölt... er alltaf að gera og segja einhverja algjöra vitleysu sama hvaða tungumál ég nota... kannski það verði bara til þess að fólk muni eftir mér for ever and ever :)

"...we all seem to need the help of someone else, to mend that shelf, to many books... read me your favourite line..."

Mín er án efa: "Hver nýr dagur er eins og óopnaður pakki, gjöf til þín. Þú veist ekki hvert innihaldið er né þyðing þess....Að geta opnað hvern pakka með forvitni og eftirvæntingu er ekki öllum gefið. Lengi vel taldi ég mig vita hvað væri í hverjum pakka sem mér var gefinn og að ég þyrfti ekki að athuga innihaldið nánar, jafnvel ekki opna pakkann. Þetta var til þess að ég missti af ótal gjöfum sem mér yfirsást eða fannst of smávægilear til að skoða nánar" Afrit af deginum góða e. Gunnar Þorsteinsson

"...some things in life may changes, when some things stay the same... like time, it is always time..."

netið komið...

Ég sit í rúminu mínu heima hjá mér þegar þetta er skrifað... já komin með netið aftur... allt er þegar þrennt er, eða fernnt eða fimmt eða hvað það nú er... en nú ætla ég að vera búin að læra af reynslunni og ekki meira óhóflegt download eða uppload eða bara einhverskonar load... búin að hlaupa nógu oft á þennan vegg!!!

4 dagar í Steinarr Loga
5 dagar í Auðun og Mömmu og Pabba
8 dagar í Röggu

P.S. varð rosa veik á seinustu helgi og Ragga sætasta sæta reddaði veikinda-innkaupa-listanum, þúsund milljón trilljón þakkir... Elín og Bjöggi buðu mér svo að koma í matarboð í boði Bjössa-bjöggavin þegar ég var að rísa uppúr rúminu á sunnudaginn, bjargaði alveg orkulevelinu, þúsund milljón trilljón þakkir... hvað gerir kona án vina og vina vina, ég bara spyr :)
Ylfa hélt svo uppi húmornum... það er svo gott að þekkja einhverja svona samseka í ruglinu... sumt á bara ekki að gerast ;)... og þá er gott að geta bara hlegið af þessu öllu saman!!!! hlátur er sko besta meðalið....

the first made...

Nu hefur mer tekist ad bua til alveg glænytt efni... get ekki gert øll thau prof sem eg gjarnan vildi a "frumburdinn" thvi doktorsnemarnir sem deila med mer tilraunastofu thurfa endilega ad nota minar græjur i dag... NB horfi a allt utfra thvi ad eg se midpunkturinn...thad er sko ekki eg sem fekk lanadar theirra græjur ;) annar theirra er svo kruttlega mikid smamæltur ad eg get ekki annad en brosad thegar hann segir "digital output"...
Thad er fluga i glugganum a skrifstofunni minni... mer finnst notarlegt ad heyra sudid i henni... minnir mig a ad sumarid er bara rett handan vid hornid...

5 dagar i Steinarr Loga...
6 dagar i Audun og Mømmu og Pabba...
 
eXTReMe Tracker