Around the world on bikes...

Vinir..

A good friend will come bail you out of jail... but a true friend will be sitting next to you saying "Damn... we fucked up!!!!!"

Því stundum verður mönnum á... líka konum ;)

Blessuð sé minning hans...

...drap í fyrsta sinn áðan... geitungarnir voru bara orðnir of margir í herberginu mínu svo ég náði í eitthvað bölvað eitur og sprey sprey... einn þeirra lá í valnum... var að ljúka við jarðaförina... vona bara að hinir geitungarnir láti sér þetta að kenningu verða og haldi sig frá mínu herbergi...mér líkar illa við að drepa... en ég var búin að reyna hvað ég gat að fylgja þeim út en þeir bara vildu ekki fara... það er eitthvað við herbergið mitt ;)

Rassi fær þúsund prik fyrir alveg endalausa þolinmæði gagnvart mér... um leið er hann búin að fatta að ég er mjög lítið brothætt og ýtir mér áfram alveg óhræddur... ég nennti ekki að hanga á skrifstofunni minni í allann dag... og sagðist ætla bara að fara heim um hádegi (eftir ekki svo afkastamikin morgun)... næ nefnilega svo miklu betri einbeitingu heima í að skrifa... sniðugt sagði rassmundurinn, góð hugmynd... svo þegar ég kom heim beið mín e-mail frá honum "ég hlakka SVO til að lesa hvað þú hefur skrifað á morgun!!!" ...%&/(%&%&... letidagurinn fór alveg til fjandans og ég er búin að sitja sveitt með $%&$% geitungana á sveimi í kringum mig í allan dag... ég er alveg viss um að þetta er einhverskonar kaldur húmor hjá honum Rasmusi og nú situr hann heima hjá sér og hlær....%&/%&/(%&/$$... en ég skal sko sína honum hvað ég get skrifað mikið á einum sólarhring... það verður nóg fyrir hann að gera á morgun...

Ég nennti ekki að sjóða mér pasta í kvöldmat... svo ég borðaði bara pastasósu án pasta... skrítið hvað allt verður rosalega gott þegar hungrið er alveg að fara með konu... mæli samt ekki með eintómri pastasósu... ísbíllinn kemur svo hingað á þriðjudögum en ískápurinn er enn of fullur fyrir is... þegar ég versla í frystirinn alveg ein og óstudd þá er þar bara að finna ís... er svo rosalega lítið skynsöm eitthvað...

Það eru annars komnir fullt af nýjum og sætum IESTA strákum... svo ég bara verð að fara á þriðjudagsbarinn í kvöld... erfitt að hafa ekkert val... ef það væri ekki fyrir sæta stráka væri ég svo miklu miklu skynsamari... þeir rústa hreinlega lífi mínu þessir blessuðu folar...
Ég var að fá sjónvarp... og hef alls ekki fundið eirðina til að horfa á sjónvarp ennþá... á svo erfitt með að vera kyrr... en allavegana, það var eitthvað prison break marathon yfir helgina... öll fyrsta serian sýnd i einni bunu... ég horfði á alla þættina... hef ekki hugmynd um hvað þeir eru þó... hann er bara svo rosalega getnaðalegaur hann þarna aðalleikarinn... alveg þess virði að horfa á þá þætti ;)

Bjórinn kallar...

EInhversstaðar mitt á milli....

Póstkassinn er góður geymslustaður fyrir unsolved buisness... ég veit samt alveg nákvæmlega hvað er í honum... en þar er gott að geyma dót sem ég hef ekki tíma til að takast á við alveg eins og er...

Lífið er ein stór forgangsröðun... skrifa tékklista og reyna eftir besta viti að raða í rétta röð á listann... ég er loksins búin að gera allt sem ég þurfti að gera um leið og ég komst til DK... já já það hefur liðið langur tími en ég hef verið svo upptekin við annarra tékklista að minn hefur einhvernvegin ekki einu sinni komist á blað... fyrr en nú... og tjékk tjékk tjékk... all in order...

Það var því frekar pirrandi að kíkja í póstkassan í morgun... loksins þegar reikningar þessa mánaðar eru komnir til skila er leigureikningur næsta mánaðar búin að skila sér í blessaðan póstkassann... ásamt ennþá fleiri bréfum sem þarf að svara eða sinna á einhvern hátt... seinustu vikuna í hverjum mánuði finnst mér að það ætti að vera póst-frí...

En til allrar hamingju beið mín líka pakki í póstinum í dag... svona pakki sem kallar ekki á neitt annað en gleði yfir að það er einhversstaðar einhver sem man eftir konu í amstri dagsins... ekkert tilefni... bara til að segja mér að ef allt annað bregst þá er hægt að taka minn tékklista fyrir einu sinni og geyma öllum hinum... svoleiðis pakkar eru bara svo æðislegir... í hvaða formi sem þeir koma...

Einn góðan veðurdag ætla ég að læra að gera ekki allt sjálf... ég lofa...

Ég skildi allt hitt eftir í póstkassanum og fór upp með pakkann, reif utan af honum yfir morgunkaffinu... morgunstund gefur gull í mund... (eða hvernig sem þetta nú er, ég er alveg extra lesblind þegar kemur að málsháttum og tilvitnunum, kemur alltaf öfugt uppúr mér)... en svona góður glaðningur í morgunsárið gerði sko miklu meira en gæfumun... kannski jafnvel merki þess að at the end of the day I am not doing it all by my self...

Æji hvað ég vildi nú samt stundum að ég gæti troðið meira af the unsolved buisness, sem ekki koma í formi bréfa í póstkassann... og geymt það þar, þangað til ég hef tíma til að takast á við það...

Byrjunin er yfirleitt ógnvekjandi...
Endirinn sorglegur...
Það er þetta mitt á milli sem skilur mest eftir sig...
Þetta er gott að muna, þegar byrjunin, endirinn eða þetta mitt á milli er að böggast eitthvað... gefur von :)

Ég bara veit ekki.....

Mér finnst ég vera að bruna upp blindhæð alveg öfugu megin á götunni, án þess einu sinni að vita hvort það er hægri eða vinstri umferð... treysti bara á lukkuna en er dauðhrædd um að á móti mér komi fluttningabíll!!!!!!!!

Fór í mat til Lauru og kærasta hennar (Jost er nafnið borið fram en veit ekki hvernig á að skrifa það). Þarna sátum við og spjölluðum um daginn og vegin... jafnaldrar í svipaðri stöðu að reyna að skilja hið óskiljanlega... matarboðið fór fram á dönsku og ég lagði mig alla fram við að vera eðlileg á dönsku... frekar erfitt að vera eðlileg en það voru kartöflur í matinn svo það reyndist auðveldra... hahahahaha...
Vorum sammála í minimalismanum... veraldlegir hlutir ekkert svo spennandi og bílar bara munaður en alls ekki þarfaþing.... en minimalisk hugsun á líka við um lífsviðhorf, viðhorf sem er erfitt að útskýra, en ég held að það sé okkar kynslóðar hippaviðhorf... kannski ekki alveg eins mikill kraftur í okkur eins og í hippunum.... eða krafturinn er öðruvísi... barist við að falla ekki í gildru einsleits umhverfis og reynt af öllu afli að vera ekkert annað en þú sjálf... en það getur verið drulluerfitt...
Umræðan snérist yfir í gamla hippann sem býr í stærsta húsinu í götunni... sveik hann málstaðinn... eða er það óumflýjanlegt að sanka að sér steinsteypu á langri starfsævi... starfsævi sem snýst um að gera það sem þykir skemmtilegt... við urðum sammála um að eftir svona 20 ár ættum við eftir að hittast og tala um nýja húsið okkar og nýja bílinn og allt hitt nýja dótið.... því það er ekki endalaust hægt að eyða peningum í bjór og föt og ferðalög.... þannig er það nú....

LIFE IS WHAT HAPPENS WHEN YOU ARE BUSY MAKING OTHER PLANS!!!

Umræðan snérist yfir í öryggi/óöryggi... hvað það væri nú gott að eiga bara sína íbúð og hund og bíl... vakna, vinna, borða, sofa... dagskipulagið einfalt og eins alla daga... og svo þegar einhver spyr “og hvað á svo að gera, á morgun, eða hinn, í næsta mánuði, eða næsta ári” þá væri hægt að svara, “vakna, vinna, borða, sofa”... í frábæru vinnunni, fullkomu íbúðinni og borga matinn með gullkortinu...í stað þess að þurfa alltaf að segja “ég veit það ekki!!!!!!!!!!!!!!!!!!!”.
Við mundum öll eftir einhverjum stundum í barnæsku þar sem foreldrar okkar höfðu andað léttar þegar loksins komu mánaðarmót, hrísgjónagrautum í marga daga í röð, litlum/gömlum/slæmum híbýlum eða reikningum sem virtust aldrei hætta að streyma innum bréfalúguna á æskuheimilunum... og allt í einu áttuðum við okkur á að þó svo að við hefðum verið börn foreldra okkar þegar þau voru að ganga í gegnum 25-40 ára aldrinn ættum við það alveg eftir... nú væri komið að okkur að vera óörugga fullorðna fólkið... með allt niður um okkur... að reyna að læra hvernig á að klæða sig í buxur...
Við hlóum mikið, borðuðum mikið og prófuðum fjórar tegundir af bjór.... nýjasta trendið hér í DK er bjórsmökkun og lýsingarnar á bragði bjóranna einkennast oft af við hvaða aðstæður best er að drekka þá... þessi er svona meira engar áhyggjur sól úti sól inni bjór... á meðan þessi er þyngri og á betur við í rigningu þegar þvotturinn er orðin svo mikill að það þýðir ekkert að byrja og ískápurinn óþægilega tómur....
Seinasti bjórinn var carlsberg... sem er svona hygge sig sammen med nogle gode venner bjór... við skáluðum fyrir óvissu framtíðarinnar... og urðum sammála um að allt óöryggið yrði einfaldlega til þess að við myndum gefa aðeins meira af okkur til þess eins að lifa af... jafnvel koma okkur sjálfum á óvart og gera betur eða meira en víð annars trúðum að við gætum....
Að lokum bara varð ég að smakka eitthvað hollenskt kissuberja vín og við glöddumst yfir öllum “ég veit ekki svöruðum” og skáluðum fyrir að eiga þau ennþá þónokkur eftir... og svo hljóp ég til að reyna að ná seinustu lestinni.... sem varð að fyrsta næturstrædóinum... en þannig vill það nú oft vera þegar kona lifir bara í núinu ;)

Ég nú komin á 150 upp blindhæðina og veit ekki enn hvoru megin umferðin er... en það er eitthvað svo miklu skemmtilegra að vita að það eru fleiri að takast á við blindhæðir... og kannski verður það ekki fluttningabíll sem ég rekst á...heldur einhver sem er að gera það sama og ég... bara að fara í öfuga átt...

VATN!!!!!!!

Eg hafdi bara ekki fattad fyrr en nu hversu mikid vatn eg drekk svona dagsdaglega... kannski er eg meira thyrst thegar eg tharf ad fara yfir lækin til ad drekka vatnid, eg veit ekki... en aldrei hefur mer fundist kok eins vont og nu!!! bjorinn stendur tho alltaf fyrir sinu og bjoriskapurinn er algjor live-saver...

Thad er annars ekki sjalfgefid ad finna vatn i sjoppum og stormørkudum her i kringum DTU svædid... barasta uppselt... thad nennir enginn ad sjoda vatn til ad drekka... tekur svo rosalega langan tima ad kæla thad aftur... eg er samt buin ad finna einn vel faldan sjalfsala fullan af dyrindis vatni og eg ætla sko ekki ad deila theirri vitneskju med neinum :)

Thetta er nu bara innløgn i reynslubankann og eg hef lært ad meta vatn betur!!!

Upplysingaflædid er samt frekar skritid... ekkert sagt nema EKKI DREKKA VATNID... vid faum ekki ad vita hversu alvarlegt thetta er... er i lagi ad bursta tennurnar uppur thessu vatni??? Ma fara i sturtu??? Hver eru einkennin ef vid høfum smitast?? og så videre... en sykingin i vatninu her kom upp a midvikudegi og thad er ekki fyrr en a thridjudeginum a eftir sem vid eigum ad fara ad passa okkur... filingurinn heima hja mer er thvi svolitid... vid erum fucked anyway!!!!!!

Kjaftasøgurnar segja ad thad hafi lika komid upp e.coli syking i vatninu i Gentofte... og samsæriskenningarnar eru ordnar thonokkrar... flestar a tha vegu ad thetta hljoti ad vera a øllu kaupmannahafnarsvædinu, en mismikil syking... eg veit ekkert hvernig vatnsbolin liggja her...

Her eftir verdur thad bara vatn ur bud hja mer............

ég er svo þyrst....

Til alle på DTU's område





DTU har netop modtaget flg. meddelelse fra Lyngby-Taarbæk Kommunes driftafdeling.


Det meddeles her til formiddag, at der ved prøve mandag d. 21.8 er fundet 14
kolonier/100 ml (E-coli) i vandtårnet, som forsyner DTU. Vandtårnet er efterfølgende
aflukket, og DTU får i øjeblikket ikke vand fra dette tårn.
I en overgangsperiode skal det anbefales at koge vand til drikkebrug.

Med venlig hilsen





Det kan derfor ikkie udelukkes, at der er e-coli bakterier i DTU's vandforsyning,
hvorfor



INGEN MÅ DRIKKE VAND FRA VANDHANEN UDEN AT KOGE DET FØRST.



Det henstilles, at alle modtagere af denne mail kommunikerer indholdet til kolleger,
studerende, gæster, lejere m. fl.



Der vil løbende blive udsendt supplerende information, så snart der er nyt i sagen.

Go´morgen Danmark

...er uppáhalds sjónvarpsefnið mitt.

Það er alltaf svo margt skemmtilegt að gerast í þessum þáttum, einhvernvegin allt milli himins og jarðar. Í morgun var ég eitthvað pirruð og fannst allt ömurlegt, sérstaklega ég... svo var þetta frábæra viðtal við einhvern sem ég náði ekki hver var því ég kom inní mitt viðtalið sem sagði: "hættum að reyna að vera það sem við höldum að við eigum að vera og verum bara hreinskilin og verum það sem við erum"... (ég er svo góð í að þýða)... hann sagði að við værum öll að ljúga að okkur sjálfum og fólkinu í kringum okkur með því að þykjast vera fullkomin (samkvæmt norminu)... hann tók sem dæmi að það væri ferlega skrítið að tæplega 60 prósent dana segja fjölskyldulífið það sem skipti þá mestu máli um leið og 50% hjónabanda enda með skilnaði...

Dagurinn í dag varð alveg frábær hjá mér... ég nefnilega hætti að ljúga að sjálfri mér... ég er því mjög sátt við að vera eins ófullkomin og ég er... gjörsamlega búin að klúðra skipulagi dagsins... búin að brjóta og bramla fullt niðri á tilraunastofu... skrifað mjög asnaleg e-mail til the boss... borða yfir mig eftir að hafa beðið of lengi með að borða... misst stjórn á skapi mínu því ég á mjög erfitt með að vera svöng... eytt tíma í internet hangs... og svona mætti lengi telja... og dagurinn er samt bara hálfnaður...

En í allri ringulreiðinni hefur mér tekist að klára og gera miklu meira en marga aðra daga... ég hef alltaf verið eins ófullkomin og í dag... en í stað þess að sætta mig við það hef ég verið að pirra mig yfir smáatriðunum... í stað þess að njóta the big picture... ég er bara svo fullkomlega ófullkomin..

Ég mæli allavegana með danska morgunsjónvarpinu... já og ég er búin að kaupa mér sjónvarp... fann eitt sem er of gamalt til að vera með fjarstýringu en samt í lit í den blå avis...

If you can't be a good example, then you'll just have to be a horrible warning.

Aldeilis frábær helgi að baki...

...og ný vinnuvika hafin.

Það var margt og mikið dundað á helginni... margar sniðugar ástæður fyrir að fara ekkert að telja upp öll mín skref þessa helgi... en það var voða voða gaman... ;)

Verkefnið er nú annars að verða komið með gott form... allir kaflar komnir með nafn og eitthvað komið undir öll þessi nöfn... tilraununum er ekki lokið, og ég er orðin ansi leið á ammoníaklykt sem umlykur mig þessa dagana... allt hefst þetta nú skref fyrir skref... þó ég skilji ekki alveg hvernig sólahringurinn dugar mér þessa dagana...

geitungarnir eru aðeins of ágengir...

...þegar ég sagði að heimilislausir væru velkomnir á hótel Steinunni var ég ekki að tala um geitungana!!!!!!!!!! Þeir eru að fara í mína fínustu... ykkar tími er liðinn...

MINN TÍMI MUN KOMA

En Rökkvi var annars að fá hjól... og það var ekkert annað í stöðinni en að prófa gripinn...



and of he goes... bíddu eftir okkur!!! :)



Rut fékk líka hjól en ég neita að setja mynd af henni á hjólinu fyrr en hún er búin að hækka sætið... hún er eins og spassi á hjólinu svona og það er ekki hægt að setja mynd af því hér á BIKINGpiger síðuna ;)

Svo er það bara afslöppun í det dejlige dejlige værelse...



En það getur verið þreytandi að byrja í nýjum skóla, í nýju landi, á alveg nýju tungumáli, með alveg nýju fólki... úff, en þá er gott sofa vel

Since economic and political an NOT environmental concerns are ususally the main incitement for using a given technology, the efficiency of the renewable energy production methods need to be optimezed in the future, if they are to be copetitive with existing well known non-fossile fuel energy sources, such as nuclear power.

Lengi lifi verkfræðingar því án þeirra væri ekki hægt að finna tækni sem restinni af heiminum finnst nógu auðveld og ódýr að nota... það er alveg sama hversu oft er sagt að eitthvað ákveðið er hættulegt, ef það er ódýrt og fljótlegt eru alltof margir of ginkeyptir... sjáið bara offituvandamál hins vestræna heims... 1944, ódýru og fjlótlegu réttirnir, namminamminamm, eða hvað????

að vera eða ekki vera....

... oftast vil ég nú vera... en það kemur fyrir að ég vil helst ekki vera, að minnsta kosti ekki vera ákkúrat þar sem ég er...

Ég á svo rosalega auðvelt með að koma mér í vandræði... koma mér í einhverskonar aðstöðu sem ég hreinlega veit ekki alveg hvernig ég á að takast á við... í dag kom ég mér einmitt í eina svoleiðis aðstöðu... svitnaði og svitnaði, hjartað sló örar en venjulega og orðin komu öfugt uppúr mér... eina sem mér datt í hug að gera til að bjarga mér úr asnalegum aðstæðum með að reyna að skipta um umræðuefni... en það gekk ekki svo vel... og ég tók eina svona stress dífu... get ekki sagt annað en ég hafi verið úrvinda af þreytu þegar ég kom heim... það tekur sko ekkert smá á að vera ég... því var ekkert annað í stöðunni en að hjóla úr mér spennuna í kvöldsólinni... tók srett í gegnum skóginn að ströndinni svo til baka og brunaði að lyngby sö og svo aftur heim... það er ekkert smá fallegt hér í danmörku... himininn næstum því eins bleikur og á íslandi :)

Fékk fullt af brosköllum frá leiðbeinandanum mínum í dag... það er nú reyndar ekki svo erfitt að líta vel út þegar kona er búin að grafa gröf sína svo djúpa að það að þylja upp stafrófið gæti þótt merkilegt framtak... ó well... seinasta e-mailið sem ég fékk hljóðaði svona "Just count on your chemical intuition and plan for friday :-) ".... kona bara komin með CHEMICAL INTUITION... hvort sem ég stend nú eða fell með þessu innsæi mínu á föstudaginn fékk ég broskall í kladdann í dag... það verður spennandi að sjá hvernig föstudagurinn fer... get ekki beðið!!!!!!!

Lei er að verja lokaverkefnið sitt á föstudaginn og í tilefni af því er efnt til matarveislu á kínverksa veitingastaðnum í Lyngby í hádeginu... veitingastaðurinn er reyndar mongólískur en Lei hin kínverksa hefur ákveðið að á föstudaginn er þetta kínverksur veitingastaður... af henni hef ég lært að það að borða kínverskt er að borða mikið og marga rétti... ég er hið mest átvagl en hef ekkert í þessa litlu títlu þegar kemur að mat og þá er nú mikið sagt!!!!!! Ég verð þó að passa að borða ekki yfir mig svo ég geti tekist á við hið efnafræðilega innsæi mitt eftir hádegi... af mörgum ástæðum hefur kvennaskólaganga mín verið að rifjast aðeins upp fyrir mér seinustu daga... og ég man ófá skiptin sem ég þurfti að fara fyrr heim úr skólanum vegna ofáts í hádeginu, ég varð nefnilega alltaf að jafna mig eftir átið áður en ég átti að mæta í eina af þessum þremur vinnum sem ég var í á menntaskólaárunum... en nú er það sko ekki vinna heldur bara skuldasöfnun... hehehehehehehe... gangi ykkur öll vel með ykkar....

Rigning....

... í morgun þegar við vöknuðum hér í 411 var helli rigning úti. Rökkvi leit útum gluggan og var ekki alveg viss hvað honum ætti að finnast, svo mikil var rigningin. Hún var samt svo spennandi að hann hljóp á náttfötunum útí dyragætt til að kanna ástandið betur. Það var ekkert annað í stöðunni en að finna stígvélin fyrir barnið og setja hann í náttúrulega sturtu. Þvílík gleði sem fylgdi dembunni... við rut stóðum í dyragættinni í skjóli frá rigningunni og horfðum á litla snáðan skjálfa í bara náttfötum og stígvélum... þvílíkt ævintýri... hann fékk þó að fara í heita sturtu til að hlýja sér á eftir....

Rökkva fannst ekki eins gaman að þurfa að passa sig á pollunum þegar við svo löbbuðum í strætóinn stuttu seinna... það er bara svo gaman að hoppa í pollum... en það er náttúrulega allt á 120 hér og því varla tími fyrir allt sem verður á vegi okkar hér í danmörku. Rökkvi fór svo í heimsókn til pabba síns og við Rut ætluðum að ruslast í Bilka og kaupa nauðsynjar... við vorum svo svangar þegar við komum í Fields að við ákváðum að byrja á því að fara á kaffihús... sem var kannski ekki svo voðalega sniðugt því þegar við loksins nenntum að takast á við hið ekki svo skemmtilega Fields var verið að loka öllum búðunum... svo við náðum ekki að fara í Bilka... tókum samt einn hring í Söstrene og keyptum helling af hnetum... þannig að grillgestum á morgun verður boðið uppá hnetur með hnetum í allskyns skemmtilegum útfærslum...

Jæja, lífið heldur annars áfram sinn vanagang og þvottavélarnar eru á fullu núna... skúringakústurinn á lofti og brauðið í ofninum á meðan við dúllum okkur við að raða smákökum á plötuna.... nei djók!!!!!

Sendum öllum kveðjur hér úr herbergi 411....

Var ad læra nytt...

... tok eitt svona "is it on me, is it on me" kast a skrifstofunni thegar geitungur flaug herna inn adan... vid thad fekk eg utskyringu a af hverju geitungarnir eru meira sjaanlegir i agust...

...drottingin er buin ad henda theim ut ur buinu svo their eru heimilislausir greyin... auk thess ad syran i eplunum og avøstunum sem their eru ad borda nuna gerir tha fulla... svo geitungarir eru svo fullir ad their fatta ekki sjalfir ad halda sig fra mann folkinu... it is all just a big party...
...og svo stinga their ekki nema ef einhver reynir ad kremja tha...

Thetta lærdi eg af thvi ad hoppa og skoppa eins og vitleysingur her a skrifstofunni sem eg deili med fjorum ødrum... alltaf gaman ad læra eitthvad nytt ;)

Thrøngt mega sattir sitja....

...er thema lifs mins thessa daga.

I gær hitti eg stelpu fra Brasiliu sem var ad koma hingad til ad vinna fyrir IEASTA. Hun atti ad vera sott a hovedbenegården i gærkvøldi en thad kom enginn. Henni hafdi verid utlhutad herbergi a kampsax en var ekki buin ad fa neina lykla, hefdi sennielga att ad fa tha a lestarstødinni. Jæja en eg hitti hana vid adalinnganginn a kampsax um klukkan 22 i gærkvøldi. Vid reyndum eitthvad ad finna utur lyklamalunum en ekkert hægt ad gera i dk eftir 22. Marianna, en thad er nafnid hennar, fekk thvi bara ad gista a golfinu inni hja mer i nott. Vid vorum thvi fjøgur i herberginu i nott. Eg efast um ad thad komist mikid fleiri inni herbergid i einu... en thad ma alltaf reyna... svo ef thid vitid um einhvern i husnædisvanda tha bara sendid lidid a hotel Steinunni... :)

Think globally but act locally...

Eg var nu i sømu adstødu thegar eg flutti fyrst tíl dk... atti ad vera sott a jydderup station sem er gjørsamlega uti i rassgati... en thad kom enginn... klukkan var ordin meira en 23 og eg var eins ein i heiminum og thad var hægt ad vera, engin a ferli og øll ljos sløkkt i thessum ørfau husum tharna i kring... OG med aleiguna i eftirdragi... Sem betur fer tokst mer ad panta leigubil sem skutladi mer a næsta hotel, sem var reyndar mjøg langt i burtu... thar voru øll herbergi upptekin vegna brudkaups sem var akkurat thetta kvøld... svo eg fekk ad gista i einhverju thjonustuherbergi... eg man best eftir morgunmatnum sem bara svo godur, en eg fekk ad borda med hinum brudkaupsgestunum... sem by the way voru øll svo romantiskt hugsandi vegna brudkaupsins ad thad akvadu allir ad skilja adstødu mina thannig ad "danski kærasti minn sem eg hafdi ekki sed i langan tima hefdi ekki komid a lestarstødina ad sækja mig"... sem var natturulega ekki rett en mer tokst ekki ad leidretta misskilninginn og naut thess ad thykjast thurfa ad hygge-spise ;)

ó life ó life...

Finnst alltaf jafn fyndið þegar ég er á íslandi um morguninn og svo í danmörku um kvöldið...

En ég er allavegana komin aftur heim... íbúum í herbergi 411 hefur fjölgað aðeins... og við erum þrjú hérna núna... Rut og Rökkvi flutt til danmerkur... og verða fljótlega komin með sína eigin íbúð þar sem eldhúsið er þrifalegra... hahahhahahaha... Rut greyið er alveg miður sín yfir danska standardinum og veit ekki alveg hvernig hún á að taka þessu öllu saman... við ætlum að kíkja í heimsókn til Berglindar frænku á Kakså í kvöld... en þangað er stefnan hennar að flytja... og ég vona innilega hennar vegna að það kollegii er í aðeins betra standi en mitt... það kemur bara í ljós!!!!!!!! annars er það bara þröngt mega sáttir sitja númer eitt tvö og þrjú hjá okkur hér í ævintýralandi....

Líf mitt er annars sama gamla gamanmyndin... ég er ótrúlega góð í að koma mér í vandræði án þess að vita einu sinni af því... jæja en hláturinn lengir lífið svo þetta er bara allt gott og blessað... ég er hætt að reyna að skipuleggja of langt fram í tímann og hef ákveðið að láta allt bara líða áfram hægt en örugglega næstu misserin...

Ísland vara annars ÆÐISLEGT og ég er enn og aftur orðlaus yfir fegurð landsins... tók mig til og skoðaði öll suðurnesin... skellti mér í landmannalaugar og skoðaði allar virkjanirnar á leiðinni þaðan.... kíkti í bláa lónið og endalaust af sundlaugum... labbaði uppá keili... fór í sumarbústað í grímsnesinu... fór gullhringinn (þingvellir, gullfoss og geysir)... naut fallegra sumarkvölda í hafnarfirðinum... og var alltaf jafn hissa yfir bleika himninum á kvöldin á íslandi... ég túrisaðist miklu meira en man ekki meir eins og er... en þurfti að mæta í vinnu á virkum dögum... já og hitti þýska hjólamenn sem sýndu mér geðveika íslenska hjólabók sem var reyndar á þýsku...

verð að þjóta... hlakka til að hitta alla danina...
 
eXTReMe Tracker