Hvern einasta dag fer lífið á fætur...
Ég fékk svona “get out of jail” kort í seinustu viku þar sem ég þurfti ekki að prenta út lokaverkefnið mitt fyrr en í þessari viku, þar sem ég þurfti að bruna heim í fermignaveisluna... og skilaði bara á rafrænu formi...
Nú er komið að skilum. Mál að prenta út og sleppa takinu af þessu sem hefur átt hug minn allann seinustu sex mánuði, þessu sem mig hefur helst bara langað að tala um, þessu sem ég hef helst vilja eyða öllum mínum stundum með, þessu sem líf mitt hefur snúist í kringum. Sleppa takinu af þessu sem hefur verið skapað hræðslu, gleði, áhyggjur, sorg, blóð, svita, tár, bros, hlátur... Sleppa takinu af þessu sem hefur haldið fyrir mér vöku svo margar nætur, og svo orðið til þess að ég hef oftar en einu sinni vaknað upp um miðjar nætur þegar ég ætlaði svo mikið að sofa. Sleppa takinu af þessu sem var svo gaman að vakna og halda áfram með.
Jamm nú er þetta bara púff og búmsala búmm... BÚIÐ... næsta mál á dagskrá... en er bara svolítið erfitt...
"He who returns from a journey is not the same as he who left." [Chinese Proverb]
Á sama tíma er ég að ná markmiðinu sem ég er búin að stefna að SVO lengi... allt í einu finnst mér ég vera það sem ég ætlaði alltaf að vera en EKKI ég sjálf... en ég er bara Steinunn...
Það er erfitt að vera ég þessa dagana... en ég bara get ekki hætt að brosa... svona er nú lífið!!!!!!