Around the world on bikes...

Ad fullordnast...

Eg er komin med vinnu. Byrja 30 mai og hlakka bara mikid til ad leggja af stad i thann leidangur. Mer skilst ad "islændingerne på køkken 4" verdi ad vinna hja sama fyrirtæki... merkilegt :)

Eg er annars astfangin... af hafnarfirdi. Thad er svo vinalegt ad hitta kunningja svona a førnum vegi. I fiskbudinni a horninu heyrdi eg øskrad "ertu vangefin" thegar eg for i fyrsta sinn ad versla i matinn. Mer bra rosalega vid lætinn en roadist thegar eg fattadi ad thetta var bara Lara Fleck sem øskradi svona af gedshræringu af ad sja mig. Ekki fekk eg allt til matargerdarinnar i fiskbudinni, og thurfti ad ljuka innkaupunum i Fjardakaupum allra landsmanna. I einni rødinni thar stod Addy storvinkona min sem horfdi bara i gegnum mig thegar eg veifadi til hennar. Thad var ekki fyrr en eg hafdi komid mer fyrir alveg vid hlidina a henni sem hun nadi ad kveikja a perunni og sagdi bara "ertu ad djoka". Næsta dag thegar vid Addy vorum svo ad keyra heim af kaffihusahittingi saum vid Laru Hafberg afferma bilinn sinn og stoppudum a midri hringbrautinni til ad hlaupa ut og heilsa hinni blomstrandi konu. Thad eru lika margir fjøldyldumedlimir busettir i firdinum og thad var gaman ad banka uppa og segja hæ a rølti minu um bæinn a kosningadaginn.

Eg er annars ekki buin ad vera alveg eins mikill turisti og eg ætladi ad vera buin ad vera i sumarfriinu minu a islandi. For tho a vorhatid a Eyrarbakka, thar sem mamma keypt kaffibrusa a loppemarkadi (thad er i frasøgu færandi!!!!!!!). Merkilegast i thessu frii thotti mer ad læra undir 8. bekkjar prof med litla brodur, ferlega gaman!!! Akvad ad ryksuga frekar en ad fara ad skoda nyja haskolasvædid i Keflavik... en svona er eg nu bara :)

Eg var med storar yfirlysingar um ad flytja ekki heim aftur fyrr en Ingibjørg Solrun væri sest i forsetisradherrastolinn... en eg er best i malamidlunum (hef tho ordid vør vid asakanir um ad thekkja ekkert til malamidlanna thar sem eg er alltaf bara svona ein og tharf ekki ad taka tillit heima hja mer, eg hef nu bara aldrei buid ein svo eg veit ekki alveg hvadan thessar asakanair koma... hlæ tho bara inni mer af vitleysunni). Utanrikisradherrastolinn er sko skref i retta att, svo eg mun breyta løgheimilinu minu med bros a vør a thridjudaginn :) Eg er tho pirrud ad sjalfstædiskonur taki øllu bara thegjandi!!! Eg er allavegana ekki "thegi thu og vertu sæt" typan...

Nu er eg i danmørku, eftir stutta stund verd eg aftur a islandi... og stuttu seinna verd eg svo aftur i danmørku... en eftir thad verdur tekid sma fri fra ferdaløgum, nema tha innanlands... a islandi sko :)

allt og ekkert að gerast...

Ég er búin að vera í fríi... hefur tekið ótrúlega á sálarlífið að hafa allt í einu ekkert að gera... leiðbeinandanum mínum finnst ég örugglega mjög skrítin... sendi honum fyrst kvíðakastbréf þar sem ég baðst afsökunar á að geta ekki rétt honum útprentaða lokaritgerðina... "I am just not able to let go"... sagði ég... hann er eins skemmtilegur e-mail ritari og ég (ég er á geðveiku egó trippi og er best í öllu þessa dagana) og sendi mér skemmtilegt e-mail um að það væri óhollt að halda börnunum sínum í heimahúsum of lengi... ég fór því næsta dag og leyfði honum að rífa úr höndunum á mér lokaritgerðina og sagðist vera að flytja heim til mömmu og pabba núna... frekar fyndið svona had to be there moment... sem endaði með því að hann "skipaði" mér að njóta þess að vera nú í fríi... það liðu ekki nema tveir dagar áður en ég sendi honum næsta e-mail þar sem ég sagðist bara ómögulega geta verið í fríi og ætlaði því að fara heim að byrja á starfsleitar-processinum og því þyrfti hann að segja mér dagsetninguna fyrir vörnina með góðum fyrirvara svo ég gæti örugglega náð flugi on time... klukkutíma seinna fékk ég e-mail með Phd. starfstilboðum á deildinni... ég er utan þjónustusvæðis núna, einhversstaðar mitt á milli ísl. og dk með dótinu mínu, sem er samt ekki búið að pakkast niður í kassa og komið í gáminn... á svo hryllilega erfitt með að segja nei takk, ákveðin galli sko...

Fór með Rut og Rökkva í tivolí í seinustu viku þar sem þemað var... "steinunn að öskra"... rosalega er nú gott að öskra... við rut fórum í ÖLL tækin og ég var oft byrjuð að öskra áður en tækin fóru af stað... rökkvi var aðeins varkárari, og það var gaman að hlusta á mömmuna rut reyna að sannfæra varkára son sinn að fara í fleiri tæki... hann stóð svo bara eins og engill og veifaði eða beið í rólegri tækjunum meðan skellibjöllurnar skutust útí loftið...

Kíkti líka með Elínu á útisafnið... við vorum með nesti sem ég man ekki alveg hvað var nema náttúrulega að þar var að finna hvítvínsflösku... okkur lá svo á að borða/drekka nestið að við fundum okkur túnblett rétt við andyrið og settumst þar á teppi hófumst handa við að njóta kræsinganna... það liðu nú ekki nema 5 mín áður en safnvörðurinn kom til að biðja okkur vinsamlegast að nota spisepladsene á svæðinu, við værum nefnilega í miðri útstillingu þarna á túnblettinum... og um leið kom flokkur að hænum í von um að geta nartað í nestið okkar... við tíndum matinn vandræðalega saman um leið og við reyndum að gagga hænurnar í burtu... og drifum okkur á næsta nestissvæði... tókum okkur góðan tíma í nestispásu og vorum frekar léttar og skemmtilegar þegar við svo loksins gáfum okkur tíma í að skoða safnið... furðulegt hvað fólk hafði lítl rúm og lítið einkalíf þarna í den... en almenningsklósettin á safninu eru þrifaleg :)

Fór í alsherjar veslunarferð með Lei í gær... ferlega gaman... þrömmuðum upp norrebro og svo niður í miðbæ... ég var orðin svo sárfætt rétt við norreport station að ég ákvað að ég þyrfti nauðsynlega að kaupa mér betri skó... sá þá svona crocs skó á tilboði og vingsaði mér inní búðina og keypti þessa líka fallega ljósbláu skó... ég var svo upptekin af að horfa á mig í speglinum í skónum á leiðinni út að ég labbaði á fullu spítti á útidyrahurðina... meiddi mig frekar mikið en fann það ekki alveg strax því ég skammaðist mín svo... er svo "útitekin" (rauð í framan) að það tók sem betur fer enginn eftir því hvað ég roðnaði :)... enduðum svo á því að fara í bíó... og kvöddumst í miðbæ lyngby... átti ferlega erfitt á leiðinni heim að reyna að halda inni tárunum sem ætluðu hreinlega að flæða niður kinnar mínar... geðveikt leiðinlegt að kveðja... var svo hlaðin varningi eftir daginn að ég átti bara engar lausar hendur til að þurka kinnarnar... en svona er þetta... og næst tökum við bara verlunarleiðangur í shanghai...

Rölti með Rut og Rökkva heim úr bekkjarafmæli sem Rökkvinn var í í dag... ég fékk svo góða hugmynd um að prófa nýja leið heim til þeirra... sem þótti mjög skemmtileg svona í byrjun... en við villtumst svolítið mikið... og Rut var orðin pínu reið útí mig... "steinunn þú vissir alveg að þetta var vitlaus leið, þú þarft alltaf að vera í einhverjum ævintýrum, og ef þau eru ekki til staðar bara býr þú þau til með því til dæmis að villast" sagði hún hastarlega við mig einhversstaðar þarna sirka í smá vitlausri átt frá kagså kollegi-inu... við spurðum til vegar og komumst aftur tilbaka... og svo þaðan á réttan stað... svo í stað þess að vera kannski hálftíma heim, vorum við þrjá tíma :).... það rann MJÖG flótt af Rut reiðin, og ég reyndi að bæta fyrir "útafaksturinn" með að hjálpa henni að ryksuga :)... hun var samt löngu hætt að vera reið en ég var með pínu samviskubit... ég var sko ekki beint villt, það var bara svo mikið af svona "dead end streets" :)

Ég er sko búin að finna svo margar draumaíbúðir, svo erfitt að velja... en ætla samt að vera heima hjá mömmu og pabba í sumar... það er svo gott að vera hjá þeim... ég held samt að rétt áður en þeim finnst ég verð búin að fá of margar svona "góðar hugmyndir" um gönguferðir, hjólaferðir, endurröðun í skápa, breytingar á dagsskipulagi og bara tilfallandi veseni þá velji þau bara draumaíbúðina fyrir mig :) ég er annars komin með rosalega góða hugmynd á eldamennskufyrirkomulaginu... hahahahahahahaha... svo veit ég alveg hvernig best er að breyta svo fötin mín og skórnir komist fyrir... og svo verður náttúrulega ekkert hægt að nota bílskúrinn í sumar því þar verður dótið sem af einhverjum ástæðum fellur til á leið minni í gegnum lífið :)

Ég er annars bara búin að vera á flandri... og dótið mitt lifnar ekki við og pakkast sjálft niður í kassa eins og í teiknimyndunum... en það er ekki svo mikið mál að koma þessu í gám... og fljótlega, MJÖG fljótlega verður það komið af stað til íslands... en ég verð komin til draumalandsins áður en dótið leggur af stað... ég hlakka svo til þegar ég verð að borga leigu í danmörku, dótið mitt verður einhversstaðar á miðju atlandshafinu, ég á íslandi en samt að hálfu leiti með hugann við vörnina sem samt er bara formsatriði, með allt en um leið ekkert á hreinu... þá verð ég örugglega sallaróleg... ég er nú reyndar alveg sallaróleg líka núna... er nú yfirleitt sallaróleg... eða það sést yfirleitt ekki á mér þegar ég er stressuð... ég er kannski bara alltaf stressuð... nei ég er róleg... þetta er allt spurning um val... ég er róleg... ég finn hvernig tærnar á mér verða þyngri og þyngri, kálfarnir fara svo að þyngjast og þyngslin færast upp í hnén... úbbs eins gott að leggjast uppí rúm áður en ég held áfram... ég er nefnilega alltaf þessi rólega týpa sem sofnar við það eitt að hugsa slökkun :)
 
eXTReMe Tracker