Around the world on bikes...

Það er af sem áður var...

Lífið sem efnaverkfræðingur er barasta ágætt :)

Fyrsti starfsmánuðurinn gekk svosem stórslysalaust fyrir sig... ég væri ekki ég sjálf ef ég væri ekki búin að klaufskast aðeins... en ég er orðin svo vön sjálfri mér að ég barasta kippi mér ekki upp við kómedíuna í kringum mig lengur...

Mér finnst ég annars ekki búin að vera að gera svo mikið þennan mánuð sem ég er búin að búa á íslandi... rölti þó uppá Heklu eitt föstudagskvöldið í góðum hópi ungra kvenna á framabraut... er líka búin að kíkja í einhverjar sundlaugar... en mest setið yfir kaffidrykkju hjá hinum og þessum...

Stóru fréttirnar eru þó að nú á ég bíl og næstumþví íbúð líka... eða sko á og ekki á... með einni hjartalínurits undirskrift í dag gekk ég að kauptilboði sem nú hefur verið samþykkt... og því er ekkert eftirn nema að bíða og sjá hvort íbúðalánasjóður haldi nokkuð að ég sé búin að missa vitið... ég er búin að taka massív kvíðaköst inná milli þess að vera alveg sallaróleg yfir þessari skuldasöfnun minni... ég lít ekki á fasteign sem EIGN... en einhversstaðar verður kona að eiga heima... og því er bara að muna að anda inn og anda út... anda inn og anda út....

Mér fannst nú reyndar erfitt að "kaupa" bílinn minn...en vá hvað hann er skemmtilegur :) þetta er ekkert mál.... have to go, bílinn kallar á rúnt :9
 
eXTReMe Tracker