Ég lofaði sjáfri mér að taka því rólega þetta árið... en eins og svo oft vill verða þá eru það loforðin við sjálfið sem vilja gleymast... held ég sé orðin svo mikill spennufíkill að ég er orðin háð því að hafa dagskránna svo þétta að það þarf súperdúper krafta til að láta allt ganga upp... súperdúper kraftarnir hafa alveg verið að sýna sig og sanna... en ég verð þó að viðurkenna að ég finn að þeir fara dvínandi... gott að ég sé fyrir endan á skipulaginu og rétt handan við hornið blasir við eintóm óreiða jibbí jei...
Mikið lifandi skelfingar ósköp er gaman að vera svolítið hífuð... ég er þó sem betur fer farin að taka autopilotin heim áður en gjörningar ímyndunarafls míns taka völdin... finnst ég rosa fullorðins að vera búin að læra þetta... og það FYRIR þrítugt!!!!
sakna þess að sitja í lest... finnast ég heppnust í heimi að hafa náð sæti... draga upp bók... loka fyrir lætin í mannmerðinni í kringum mig... og hverfa inní heim stafanna sem ég einblíni á... nú sit ég bara í umferðinni og syng hærra en ég hélt ég gæti með laginu í útvarpinu... og hlæ svo með fólkinu í næsta bíl sem getur ekki annað en hlegið af innlifun minni... það dregur víst úr stressi að syngja og hláturinn góður fyrir sálarlífið... ég get því ekki kvartað, en það er allt í lagi að sakna líka þess sem er hinumegin við ánna... er það ekki????

<< Home