ÁFRAM ÍSLAND
Og þarna lágum við öll á gólfinu... fjölskyldan sem stækkar bara og stækkar.... þau okkar sem erum búin að halda uppá 25 ára afmælið vorum í óða önn að fylgja legóteikningunum sem lofuðu svo góðri niðurstöðu "mig vantar svona gulan með þerm og fer í horn" sagði ég og öll sameinuðumst við um að leita... unglingurinn sá sér ekki fært að fara í félagsmiðstöðina, svo miklu skemmtilgra að leika í legói með fjölskyldunni... og barnið vappaði í kring, synti í legóinu og fann gleðina í samverunni, ekki dótinu... maður er manns gaman...
Í sjónvarpinu einhversstaðar langt langt í burtu heyrði ég “hvaða framtíð bíður okkur íslendingum eiginlega nú þegar við getum ekki keypt neitt”... ég fann örlítin hnút í magnum... þennan sama og ég fann í gær og hinn og hinn.... þennan sem bankarnir gáfu mér 6 október á silfurfati... ég leit í kringum mig og fann hamingjuna... og áttaði mig á að framtíðin er eitthvað svo miklu einfaldari, bjartari, gleðilegri nú þegar ég get ekki keypt neitt... hamingjuna er nefnilega ekki hægt að kaupa

<< Home