Around the world on bikes...

7. júní

Í gær var eitt ár síðan ég varði mastersverkefnið mitt og breyttist úr því að vera óbreyttur stúdent í að vera efnaverkfræðingur... síðan þá hefur ótrúlega mikið gerst... næstum því hægt að segja að lífsmynstur mitt hafi umturnars...
eftir mikin æsing á árinu 2007 lofaði ég mér um áramótin að taka því RÓLEGA á þessu ári... draga seglin niður og bara fljóta með í lífsins ólgusjó...
í gær tók ég lokaprófið í einkaþjálfaranum sem ég er búin að vera að hamast við að læra seinustu mánuði... það er eins og ég bara kunni ekki að bara fljóta um og þarf alltaf að vera að hamast við að blása í seglin... alltaf að læra meira og meira, meira í dag en í gær... verð samt stundum þreytt á æsingnum í sjálfri mér...
mér finnst ég vera komin í sumarfrí nú þegar kvöldin eru frí og framundan tímar þar sem ég þarf BARA að vinna... síðan ég skilaði prófinu í gær er ég því búin að rífa allt úr öllum skápum og hillum og er að taka almennilega til heima hjá mér... finnst alltaf ég vera að taka til á sálinni þegar ég tek til í skápunum... er núna búin að finna þvílíka sálarró á þessum eina og hálfa sólarhring sem "sumarfríið" mitt er búið að vara... og get ekki annað sagt en að ég sé alveg endalaust hamingjusöm... er nú reyndar eiginlega alltaf svo hamingjusöm :)
það hefur samt aldrei verið eins mikið drasl í litla kotinu mínu og nú....en skáparnir eru allavegana tómir og hreinir :):):)... líka búin að bæta á draslið þar sem mamma og pabbi eru að taka til í sínum geymslum.... það er svo margt verðmæti í mínum augum...
Er svo heppin að fá einn 7 ára í heimsókn eina helgi í mánuði... og næst þegar hann kemur verður greyið litla að leika með allt gamla dótið mitt... ég held honum verði nú alveg sama... þar sem reyndin er að það er ekki akkúrat dótið sem heillar... heldur félagskapurinn sem fylgir... og ég get ekki beiðið eftir að detta í barnið Steinunni og rifja upp gamla leiki :) míns og þinns og þaus og hvernig þetta var nú allt saman... góð kona glatar aldrei barnshjarta sínu...
Við eignastýringar eftirliti á skuldum almennings í landinu er ákveðið flækjustig fólgið í því að fylgjast með afborgunum á VISAkortunum... það er nefnilega þannig að margir reikningar borga fleiri en einn visareikning... þið vitið þegar mennirnir borga visareikning betri helmingsins... ég borga nú minn visareikning alveg sjálf... mér finnst sko að ég ætti að fá ofurlaun frá bankanum fyrir að draga svona úr þessari flækju með þessu frábæra framtaki mínu ... í alvöru... jafnvel bara að losna undan þvi að borga visareikninginn.... það myndi nú leysa flækjurnar ennþá meira... líka mínar flækjur

langar svo í einn alvöru þriðjudagsbar ... labba inn og sjá kunnugleg og traustvekjandi andlit... finna þörfina á að demba yfir þetta ágæta fólk öllum vandkvæðum lífsins í einni langri orðabunu... fatta svo að hinir eru alveg í sömu sporum... taka krók á barinn og grípa einn kaldann með mér að borðinu... og svo í stað þess að röfla yfir öllu... rétta út hendina og segja SKÁL!!!!! og leyfa svo áfengis draugnum að eiga allar áhyggjur mínar...

vandkvæði lífs míns eru þó alls ekki fjárhagsleg... bara svo þreytt á að horfa í baksýnisspegil samstarfsfólksins.... "sjáðu steinunn, svona hefur þetta alltaf verið, er svona, og mun því alltaf vera svona"... sakna stúdentalífsins þegar sögur fortíðarinnar voru stúderaðar af mikilli ákefði og notaðar til að skapa frjóa framtíðarsýn...

er annars að læra undir próf... reyna að leggja á minnið orð eins og "rectus abdominis, rectus fermoris"... man bara rectus orðin, skil ekkert í þessu :)... hjúkk að mín sé ekki farin að taka lífið of alvarlega þrátt fyrir endalaus fullorðinslæti...
 
eXTReMe Tracker