Around the world on bikes...


Og engillinn sagði: "Nú getur þú hagað þér í samræmi við aldur" og ég svaraði "Hvað áttu við með því? Rólega tónlist og fótlaga skó? "Það hljómar rétt" svarði engilinn. "Nei ég vil það ekki. Ég vil halda ástríðu. Ég vil æpa á rokktónlistum. Og verða reið yfir fréttum. Ég vil ganga í pínupilum." "Þú munt líta fáránlega út" sagði engilinn og hristi hausinn. "jájá... Þegar nógu nógu margir eru fáránlegir verður það eðlilegt." svaraði ég og hélt mína leið :)


Ég óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.


Jólasveininn má finna í okkur öllum!


ÁFRAM ÍSLAND

Og þarna lágum við öll á gólfinu... fjölskyldan sem stækkar bara og stækkar.... þau okkar sem erum búin að halda uppá 25 ára afmælið vorum í óða önn að fylgja legóteikningunum sem lofuðu svo góðri niðurstöðu "mig vantar svona gulan með þerm og fer í horn" sagði ég og öll sameinuðumst við um að leita... unglingurinn sá sér ekki fært að fara í félagsmiðstöðina, svo miklu skemmtilgra að leika í legói með fjölskyldunni... og barnið vappaði í kring, synti í legóinu og fann gleðina í samverunni, ekki dótinu... maður er manns gaman...

Í sjónvarpinu einhversstaðar langt langt í burtu heyrði ég “hvaða framtíð bíður okkur íslendingum eiginlega nú þegar við getum ekki keypt neitt”... ég fann örlítin hnút í magnum... þennan sama og ég fann í gær og hinn og hinn.... þennan sem bankarnir gáfu mér 6 október á silfurfati... ég leit í kringum mig og fann hamingjuna... og áttaði mig á að framtíðin er eitthvað svo miklu einfaldari, bjartari, gleðilegri nú þegar ég get ekki keypt neitt... hamingjuna er nefnilega ekki hægt að kaupa

ÁFRAM ÍSLAND
 
eXTReMe Tracker