mikið svakalega er gaman að vera til ...
... ef einhverntíma hefur verið hægt að segja að ég væri "óþolandi jákvæð" þá á það við núna.
í mínum huga er "ástandinu" lokið - peningamála/einkstaklingshyggunni er lokið á íslandinu góða :) og nú er ekkert hægt að gera en að vinna sig upp. Í þolraun sannast þrekið best - eins og titillinn var á seinasta morgunverðarfundi gamla Glitnis um efnahagsmálin. Þrekið ekki mikið hjá útrásavíkingunum - tala minna gera meira, þá sérstaklega þegar kemur að ábyrgð.
en að hvundagshetjum samtímans
AU-ið (1) mitt fallega fattaði það í haust að stærðfræði væri mikilvæg fyrir framtíðaráform hans. Svo hann ákvað að leggja sig allan í stærðfræðina fyrir jólaprófin. Þegar vinirnir hringdu og báðu hann að koma út að leika í vikunni fyrir jólaprófin svaraði hann alltaf neitandi þar sem hann væri of upptekin við lærdóminn. Hann fékk alla fjölskylduna í lið með sér og allt snérist um að hann næði góðum skilningi á 10. bekkjar stærðfræðina. Svo rann prófdagurinn upp og litli unginn fór alveg yfirum af stressi... og eftir allt erfiðið fékk hann ekki nema 3.9 í einkunn. Þvílíkt svekkelsi og fyrir hin vnjulega ungling svakalegt fall fyrir sjálfsímyndina ... en au-ið er ekki eins og við öll hin :)
Fullorðna fjölskyldan hans tók þetta mjög nærri sér, enda búin að prófa það oft að misstíga sig í lífinu, og þekkir hversu mikið það tekur á að rífa sig upp eftir svona sjokk... Ég segi það ekki að unglingurinn hafi bara risið upp daginn eftir próf tvíefldur í kappinu við stærðfræðina, hann tók sér stuttan tíma í að vera reiður. Og reis svo mun hraðar upp en ég sjálf hef oft gert... og nú bara 3 mánuðum seinna er minn maður búin að ná sér á strik. Hann hefur lagt mikið kapp í öll heimadæmin og skilað þeim öllum næstum 100% réttum. Í fyrsta prófinu eftir jól fékk hann 7.6... og í tilraun tvö eftir fall fékk hann 9.1!
Hetjur eru fólk sem hræðast eins og við, en horfast í augu við hræðsluna og taka af skarið. Það sem hefur einu sinni mistekist er oft mun hræðilegra en það sem hefur tekist eða það sem er alveg óþekkt.
Venjulegt fólk hrasar í lífinu. Sumir láta sér það bara að kenningu verða og forðast ógn mistakanna. Aðrir taka sér góðan tíma í að sætta sig við mannlegu hliðina áður en það horfist í augu við óttann, og komast á endanum í gegnum þolraunina í annari eða jafnvel þriðju tilraun. Örfáir hrasa, rísa hratt upp og horfast óörugg í átt að ógninni og prófa aftur... þetta eru hvundagshetjurnar sem okkur langar öllum svo að líkjast.
Bróðir minn elskulegur er einn af þessum hvundagshetjum... 16 ára og ekki hægt að segja annað en að framtíð hans sé annað en björt með þetta þor í farteskinu! ... merkilegt að eiga fyrirmynd sem er svona miklu yngri :)
(1) AU = gull í lotukerfinu
í gullkornabókina mína skrifaði ég um bróður minn
"það hefur ekkert uppá sig að láta reka á reiðanum og dreyma um að vera eitthvað - þú verður að vita hvað þetta eitthvað er"
og eftir einn af erfiðu dögunum
"Hver ertu ef þú tileinkar þér hugsanir annarra?" - góð pæling - aldrei gefast upp á sjálfri sér ;) þó svo að ég hafi ekki alltaf rétt fyrir mér, bara oftast (hehehehe)... og ekki endilega sammála fjöldanum - er ég alltaf alltaf alltaf að gera mitt besta - og það sem ég trúi að sé réttast. "hetja er hver sá sem gerir hvað hann getur"

<< Home